Heima er bezt - 01.10.2007, Qupperneq 36
En þekktust er saga Grímseyjar og eftirminnilegust frá
þeim atburði, er Olafur konungur Haraldsson falaði hana af
Islendingum, en Einar Þveræingur réð frá því að gefa eyna,
og hefur hann fyrir það hlotið mikið lof í SÖgll íslands. -
Sendimaður Ólafs konungs, er flutti kveðju hans og beiðni
um að gefa konungi Grímsey, var Þórarinn Nctjólfsson, svo
sem kunnugt er. Þegar hann kom á Þingvöll, gekk hann til
Lögbergs og bar þingheimi kveðju konungs og það með, að
hann beiddist vingjafar af Norðlendingum, þar sem væri útsker
það, er Grímsey nefndist. Einar Þveræingur latti ákveðið
gjafarinnar. Taldi hann, að í Grímsey mætti vel fæða her
manns, og þá er sá her færi þaðan með langskipum, myndi
mörgum kotkörlum þykja ærið þröngt fyrir dyrum, þar sem
þeir réðu að húsi. Hins vegar kvað Einar, að konungi mætti
senda vingjafír nokkrar, ef menn vildu svo við hafa, og
taldi til þess „hauka eða hesta, tjöld eður segl, eða aðra
þá hluti, er sendingar eru í“. Og svo sem Einar hafði þetta
rætt, snerist þingheimur allur með honum og kvað Grímsey
aldrei í eigu konungs koma skyldi.
Hefur Grímsey þá frægust orðið í sögu Islands.
Heb 1957.
516 Heima er bezt