Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2007, Page 43

Heima er bezt - 01.10.2007, Page 43
Ingibjörg Sigurðardóttir. Víðifjöróur glitrar í kvöldskini hnígandi vorsólar. Bláar, lognkyrrar öldur líða mjúklega upp að ströndinni og ljóða létt við fjörusandinn. Hin háreistu fjöll beggja megin fjarðarins minnast í þögulli tign sinni við gullofinn sæinn. Á þeirri svipmiklu spegilmynd siglir stórt strandferðaskip inn Víðifjörð. Guðbjörg Jónsdóttir hjúkrunarkona stendur á þilfari skipsins og horfir til lands. Hið stórfenglega útsýni, ofið í yndisleik vorkvöldsins, vekur hrifningu og aðdáun í sál hennar. í faðmi ijallanna við mynni fjarðarins rís kaupstaðurinn, framtíðarborgin, þar sem hún ætlar að eyða kröftum sínum. En hrifningin í sál ungu hjúkrunarkonunnar blandast sársauka. í rauninni er hún að flýja í þennan afskekkta íjörð. Hún neitaði góðri stöðu í Reykjavík af ótta við að hin kaldlynda örlagagyðja léti þau mætast þar á ný, Hauk lækni og hana. En hér hlýtur hún að geta starfað örugg og óhult. Skipið rennur upp að hafnargarðinum. Fjöldi fólks fagnar komu þess. Páll, héraðslæknirinn í Víðifirði, tekur á móti nýju hjúkrunarkonunni og býður hana velkomna. Hann er gamall og virðulegurmaður. Þau fylgjast að heim í læknishúsið. í hlýiri og vistlegri stofú sest Guðbjörg að kvöldverði. Páll læknir og Þórunn kona hans bjóða henni að gista hjá sér í nótt. Á morgun er svo nógur tími fyrir hana að flytja sig á sjúkrahúsið. Guðbjörg tekur boði þeirra með þökkum. Hlýja og alúð einkennir viðmót þessara gömlu, virðulegu læknishjóna, og sársaukinn og einstæðingskenndin í sál ungu hjúkmnarkonunnar þokar íyrir hlýrri tilfinningu í návist þeirra. Guðbjörg hefur lokið við að borða. Þórunn býr um hana á legubekknum í stofunni, hjónin bjóða henni góða nótt og ganga í burtu. Guðbjörg er ein. Hún háttar, fegin hvíldinni effir langt ferðalag, en svefninn fær ekki sigrað vitund hennar strax. í hljóðri kyrrð næturinnar á þessum ókunna stað vakna í sál hennar endurminningar liðinna ára, allt frá þeirri stundu, sem hún eignaðist þá hugsjón, sem nú er orðin að veruleika í lífi hennar. Með deginum, sem rís úr skauti þessarar hljóðu nætur, byrjar hún starfið, sem hún ætlar að fóma öllum sínunt kröftum. Ábyrgðin, sem því fylgir, hefur aldrei verið henni eins augljós og nú. í djúpri lotningu tilbeiðslunnar stígur sál hennar upp til höfundar lífsins, í heitri klökkri bæn fyrir framtíðarstarfmu, og honum, sem það er helgað, í ódauðlegri endurminningu. Friður og öryggi streymir í sál ungu hjúkrunarkonunnar, vemleikinn fjarlægist smátt og smátt og hverfur að lokum. Bjartar dísir hljóðrar vomætur vagga þreyttum jarðarbömum inn í faðm svefnsins. *** Nýir dagar rísa úr skauti tímans. Guðbjörg hjúkrunarkona hefur strax nóg að starfa. Páli lækni er það ljóst að hún er mjög fúllkomin í starfi sínu og með þeim er hin bezta samvinna. Heimili læknishjónanna stendur Guðbjörgu opið hvenær sem hún hefúr frístund, og þar nýtur hún hinnar sönnu vináttu í ríkum mæli. Unga hjúkrunarkonan vinnur ást og virðingu sjúklinga sinna og þeima, sem með henni starfa. Frá sál hennar streymir hinn fórnandi kærleikur til allra, sem þjást og líða, og svæfir hennar eigin sorgir. Hún lifir fyrir starfið. *** Vorsólin hellir geislaflóði sínu yfir sveitina. Læknishjónin á Sólvangi sitja saman í hinni vistlegu dagstofú sinni og njóta hvíldar að loknum hádegisverði. Á borði fyrir framan þau liggur stór bunki af sendibréfum, tímaritum og dagblöðum, sem pósturinn færði þeim fyrir stundu síðan. Sveinn læknirtekur efsta dagblaðið í bunkanum og byrjar að lesa það, en Ragnhildur leitar um stund í sendibréfununt. Loks tekur hún eitt bréfið af borðinu, og bros líður yfir andlit hennar. Hún þekkir rithönd dóttur sinnar utan á því, vonandi færir það henni einhveijar góðar fréttír af Agnesi, sent dvalið hefur í Reykjavík að undanfomu sér til skemmtunar. Ragnhildur opnar bréfið og les: Elskit mamma! Egþakka bréfið þitt síðast. Nú sest ég niður til að skrifa þér miklarfréttir, en ef til vill áttarþúþig ekki ífyrstu áþví, hve góðarþær eru. Eg hef nú loksins fundið hina varanlegu hamingju í lífinu. Síðastliðið laugardagskvöid opinberaði ég trúlofun mína með Val Dalbergforstjóra. Pabbiþekkir fólkið hans. Valur er alveg dásamlegur, mamma, og ég er svo óumræðilega hamingjusöm. Foreldrar hans óska eftirþví, að brúðkaup okkarfari jram í nœsta mánuði, því þá á móðir hans fimmtugsafinæli, og þeim finnst tiivalið að sameina brúðkaups og afmœlisfagnaðinn, og auðvitað erumvið Valur hjartanlega samþykkþví. Valur ogforeldrar hans sendaykkur pabba beztu kveðju sína, og við biðjum ykkur öll að koma hingað til Reykjavíkur um miðjan næsta mánuð til þess að sitja bniðkaupið og afmœlisfagnaðinn, Heima er bezt 523

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.