Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.03.1966, Blaðsíða 11
SPURNINGAR
TIL
KENNARA
HVERNIG TELJIÐ ÞÉR AÐ EIGI AÐ VELJA ÞÁ SEM GANGA EIGA MENNTAVEGINN ?
Andrés Davíðsson svarar þannig :
Þið eigið sjálfsa&t við, hvort landsprófið svonefnda sé fullgóður mælikvarði f þessum
efnum. Það hefur til þessa jafnað aðstöðu nemenda til undirbúnings menntunar og fleytt
mörgum yfir erfiðan þröskuld að æðri menntastofnunum, ef miðað er við ástand fyrri ára
f menntamálum þjóðarinnar. Nú hefur sú ágæta þróun gerzt, að víðast hvar á landinu eru
til fullboðlegir skólar, sem gegna slíku hlutverki þolanlega. Þess vegna er þegar farið að
brydda á þeirri kröfu, að val á nemendum til framhaldsnáms byggist á fleiri atriðum en
gallhörðu kunnáttuprófi.
Kenningin um gáfnaljósið, sem gat leystöll vandamál samfélagsins við skrifborðið,
hefur ekki staðizt og menn eru nú að öðlast meiri skilning á því en áður, að í samfélagi,
þar sem velferð einstaklinganna byggist að miklu leyti á siðgæðisvitund og vel unnu starfi
fjölda margra menntaðra manna, þá er greind og góðar námsgáfur ekki einhlítir eiginleik-
ar. Greindur maður, en illa innrættur, er jafnan andstyggilegur persónuleiki, og hafi hann
þar að auki klókindi og kunnáttu til að komast í mikla valdaaðstöðu, getur hann orðið stór-
hættulegur. Hins vegar getur sterk siðgæðisvitund, eljusemi og góðvild til annarra manna
fleytt meðalmanninum áfram við flest þjóðfélagsstörf, svo þau verði unnin öllum til gagns
og heilla.
Eiginleikar, sem mestu máli skipta fyrir einstaklinginn og þjóðfélagið, koma tiltölulega
snemma í ljós hjá ungu fólki. Ég tel, að kennarar verði þeirra áþreifanlega varir, oft af
titlum tilefnum í samskiptum við nemendur sina 1 skólastarfinu. Þess vegna styð ég þær
tillögur, sem komið hafa nokkuð vfða fram undanfarið, að umsögn skólanna um nemendur
ráði að miklu leyti, hvort nemandi telst hæfur til framhaldsmenntunar, að vísu þannig, að
lágmarkskröfum um kunnáttu sé fullnægt, þótt vægilegra væri farið í þær sakir en nú tiðkast
við landsprófið. Ætti það að tryggja,að mannvænlegt fólk geti valið sér verkefni og lífs-
störf eftir því. sem hugur þess stefnir að og þörf er fyrir.
- 11 -