Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.03.1966, Blaðsíða 13
stígið á þessari öld. Eina breytingu mætti þó gera strax ; að dreifa þunga landsprófnámsins yfir fleiri ár en eitt ; að
láta nám frá 11 - 16 ára aldursskeið þyngjast jafnt og þétt, en aldrei skyndilega. Ef til vill mætti jafnvel taka
landsprófið f áföngum. Þá væru fyrstu skrefin stigin f þá átt, sem ég hef áður lýst. En til að minnstu framfarir f þessa
átt eigi að takast, verður að hætta við þar nákvæmu skiptingu f skyldunámi og „ frjálst nám ” sem nú er verið að
framkvæma.
Núverandi „ sérskólar ” verði sem mest felldir inn f þessa almennu skóla, eða nám f þessum almennum skólum
vandlega tengt viðeigandi sérskólum. T.d. mætti krefjast svipaðs inntökuprófs f kennaraskóla og háskóla. Kennaranám
tæki sfðan 2 ár.
Barnaskólar, gagnfræðaskólar, menntaskólar og ýmsir sérskólar leggist þannig niður f núverandi mynd, en f
staðinn kæmi almennur skóli, sem tæki yfir öll stigin. Til greina kæmi samt, að sérstakur skóli væri fyrir börn undir
10 ára aldri, eins konar lestrarskóli, og færi þaðan enginn, nema hann hefði næga lestrarþekkingu til almenns náms.
Auðvitað gæti vel árt sér stað, að almennu skólarnir skiptu að einhverju leyti með sér verkum, þannig að einn legði
áherzlu á ákveðnar greínar, annar skóli á aðrar greinar og væri þá flutningur nemenda miili þessara skóla hafður
sveigjanlegur f framkvæmd.
Auðvitað yrðu ákveðnir tækni irðugleikar við að framkvæma þessa breytingar, en þeir væru þó þýðingarlitlir
miðað við aðalvandamálið - fastheldni við gamlar venjur.
Að endingu vil ég aftur leggja áherzlu á að meðan rórtækar breytmgar hafa ekki verið gerðar á fræðslukerfi
okkar þurfum við að hafa laudsprófið áfram. Það er stærsta spor til að samræma fræðslukerfið, sem enn þá hefur verið.
Guðlaugur Gunnlaugsson svarar þannig :
Með landsprófi.
KROSSGÁTA
LÖÐRÉTT; LARÉTT :
1. athöfn 1. áður lifað
2. sefandi 4. tfmabil
3. klaki 5. smáorð
4. festir við 6. flanar
5. ekki margar 9. sigtið
1. lík 11. espar
8. vinstri sinnaða 13. 3 bókstafir
10. nudda 14. "hossast"
12. þverbiti 15. á fæti
11. f augnablikinu 16. rasið
18. maður
19. húsdýr
20. huldufólk.