Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 04.01.1969, Page 15

Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 04.01.1969, Page 15
Kvennarökvis i Anna hafði sjálf séð lotningarsvipinn, sem kom á frú Pálínu, þegar hún skýrði henni frá því, að Jói væri í þjónustu bæjarfélagsins. "Hugsa sér, kominn í þjónustu bæjarfélagsins... Og hann er varla hálfþrítugur! " "Ekki nema 23 ára," leiðrétti Anna. Hún og Jói höfðu verið gift í mánuð, og nú sá hún ekki lengur eftir því að hafa tekið Jóa - þrátt fyrir allt. Hvað gat annars hafa komið fyrir Jóa. Klukkan var að verða sjö. Anna fór að fmynda sér öll hugsanleg slys, en svo heyrði hún Jóa stinga lyklinum í skrána og þaut á mðti honum. Hann virtist vera f sjöimda himni og veifaði kvöldblaðinu. "Hér skaltu sjá dálítið merkilegt! " sagði hann brosandi og rétti henni blaðið - og rétt á eftir lagði hann þykkan bvrnka af peningaseðlum á borðið fyrir framan hana. "Fimmtíu þúsimd krónur," sagði hann með sigurgleði í röddinni. "Fimdarlavm! " En Anna leit ekki upp úr blaðinu. "Sorphreinsunarmaður finnur demantshring í sorptunnu," stóð þar. Og auk þess tveggja dálka mynd af Jöa. "Þú skalt fá pels - og við kaupum okkur sjónvarpstækið, sem þig langar svo í," sagði Jói.

x

Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar
https://timarit.is/publication/1858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.