Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 04.01.1969, Page 21
Uvtt daginn og vegtnn
Skólamál eru eitt af því sem er ofarlega á baugi meðal nemenda f skólum
landsins.
Og ætla ég nú að gjöra grein fyrir skoðun minni á hinu íslenzka skólakerfi.
Segja má að skolakerfið hafi staðið algjörlega í stað síðast liðna áratugi.
Bækur nemenda hafa f flestum tilfellum verið gefnar út fyrir 10-20 árum
og þó að standi á titilblaðinu 9. útgáfa endurskoðuð og breytt, þá dreg ég
stérlega f efa þær breytingar. Til eru dæmi um að kennd hefur verið
landafræði sfðan fyrir strfðslok. Þar er sagt að landamæri tveggja landa
séu á þessum og þessum stað. En eins og allir vita var landamærum
nokkurra landa breytt í stríðslok. Nú þessu er ekki breytt f landafræðinni
og hún kennd sem góð og gild. Þetta lærir nú einhver, og fer síðan til
útlandsins f þeirri von um að geta verið án leiðsögumanns, aðeins notað
sfna eigin landafræði kunnáttu.
Manngarmurinn arkar af stað út í bláinn og ætlar að skoða þetta og þetta,
en veit ekki fyrr en hann er gripinn af landamæravörðum og ákærður fyrir
21