Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 04.01.1969, Síða 22

Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 04.01.1969, Síða 22
njósnir. Vegna þess að honum hafði verið kennt að landamærin væru annars staðar en þau eru. Að lokum yrðu Islendingar stimplaðir sem algjörir fáráðlingar á alþjóða vettvangi. Allt vegna stöðnunar í kennsluháttum barnaskólanna og öll þeirra starfsemi er vægast sagt á frum- stigi ( eftir öll þessi ár ). Eignist þjóðin eitthvað barn ( börn ) sem eru frábrugðin öðrum börnum,hvað áhrærir vitsmuni, verður það að gjöra svo vel að dúsa millum fólks sem hefur greindarvísitölu fyrir neðan 50-60 en hefur svo sjálft 130. Sömubækurerunotaðarsvoaðsegjaallanbarnaskólann. Ritasfingar, reikningsbók Elíasar Bjarnasonar og málfræði eru þó vinsælastar, því að í gegnum þær er pælt á hverju ári, nema málfræðina þar er aldrei farið aftur fyrir blaðsíðu 35, því að það er víst nóg fyrir 12 ára börn að kunna að skipta f atkvæði, raða f stafrófsröð og fallbeygja. Þó er til að nemendur viti mun á sögnum, fallorðum og smá orðum, er þau koma í gagnfræðaskóla. Til eru dæmi um 12 ára bekk þar sem einkunin 3-4 í lestri var alsríkjandi á barnaprófi. Að vísu eru þetta börn sem eru treggáfuð. En ekki er hægt að hola öllu þessu fólki á skútu eða f öskuna, hvað verður um þetta fólk er það vex. Hvernig væri að fá sálfræðinga til kennslu svona fólki. Og skað- laust væri að hjá svona fólki væri barnaskólinn aðeins lengri en öðruín. Þeir nemendur. sem gáfaðri eru ættu að fá kost á að ljúka barnaskóla á 3-5 árum. Einnig væri skaðlaust að veita þeim undirstöðumenntun í stærð- fræði öðru en deilingu og tugabrotum. Tungumálakennsla ætti einnig að hefjast fyrr hjá þessum nemendum og leggja meiri áherzlu á málfræði. I sambandi við landspróf vildi óg láta eftirfarandi koma fram: Landspróf ætti að skiptast í 3 deildir. I einni deildinni væri fólk, sem hefði hug á að fara f máladeild menntaskóla, f 2. væru þeir, sem hefðu hug á stærðfræði deild og í þeirri 3. væri fólk er ætlaði f einhverja aðra skóla t.d. tækniskóla, kennaraskóla o.fl. 22

x

Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar
https://timarit.is/publication/1858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.