Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 04.01.1969, Qupperneq 23

Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 04.01.1969, Qupperneq 23
Sú breyting hefur verið gjörð á landsprófi að fái nemandi óviðunandi einkunn f einhverju fagi, þá fær hann kost á að þreyta próf á ný að hausti. Þó fylgdi böggullþar skammrifi, því að landsprófsnefnd hefur í hyggju að sleppa prófi í einhverri grein, þetta getur komið sér ákaflega illa fyrir ein- staka nemendur, að sleppa prófi x fagi sem þeir ei*u öruggir með einkunn allt að 9. Tökum nú dæmi : nemandi gengst undir landspróf og er framúrskarandi duglegur f sögu en f landafræði frekar slappur. Nú er söguprófinu sleppt svo að landafræðin dregur mannin niður úr öllu valdi og hlýtur ekki framhaldseinkuxm. Förum nú eitt ár til baka, en þá var þetta fyrirkomulag ekki komið á. Það sama gerist, að nemandi fær 9 í sögu, en 5 f landafræði. Þessi maður nær landsprófi. Er hægt að flokka þetta undir framfarir?? Upp hafa komið raddir um að okkar virðuiega ríkisstjórn hafi nú í hyggju sparnaðaráætlanir miklar, og gott er nú það. En af hverju að láta það bitna á landsprófinu. Er það sparnaðaráætlun að fella niður próf í einhverju fagi ? Nú,sama skeður og áður var sagt,nem- andi fær lágt og tekur próf aðhausti. Getur það verið að prófdómarar vinni kauplaust á haustin, mér er spurn? Þá ráðstöfun landsprófsnefndar að gefa aðeins f heilum tölum tel ég vera mjög varhugaverða. Það getur orðið manni að falli að fá 6.4 í öllum greinum nema einni en fá 5,4 í henni og fái maður 8,6 og annar 9,4 þá ertiltjóns aðþeir fái báðir 9. Er það boðlegt? Að mínu áliti er sú ráðstöfun, að feila niður próf í einhverju fagi, þó það sé gjört í sparnaðarskyni algjörlega óhæf. Vilhjálmur Ragnarsson. 3 - X. 23

x

Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar
https://timarit.is/publication/1858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.