Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1942, Blaðsíða 30
28
Sé staða eða starfi sjóðfélaga lagður niður, á hann rétt á að vera
áfram í sjóðnum og greiða iðgjöld, sem miðuð séu við laun þau, er hann
hafði, er staða hans var lög’ð niður. Nýtur hann þá sömu réttinda úr
sjóðnum sem hann hefði gegnt starfi sínu áfram.
17. gr. — Þeir, sem keypt hal'a sér og ekkjum sínum lífeyri sam-
kvæmt lögum nr. 51 27. júní 1921, öðlast réttindi eflir lögum þessuin,
enda greiði þeir iðgjöld sin samkvæmt ákvæðum þeirra frá þeim tíma,
er þau öðlast gildi.
18. gr. — Ríkissjóður ábyrgist greiðslu Hfeyris samkvæmt lögum
þessurn, og greiðist hann með Yii árslífeyrisins fyrir fram á hverjum
mánuði.
19. gr. — Nánari ákvæði um skipulag sjóðsins og starfsemi hans skal
setja í reglugerð, er fjármálaráðherra staðfestir, en stjórn sjóðsins
semur.
20. gr.'— óheimilt er að framselja eða veðsetja lífeyriskröfur sam-
kvæmt lögum þessum, og ekld má leggja á þær löghald né gera í þeim
fjárnám eða lögtak. Enginn skuldheimtumaður í dánarbúi eða þrota-
búi hefur rétt til að skerða kröfurnar á nokkurn hátt.
21. gr. — Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1944. Frá sama tíma eru lög
nr. 51 27. júní 1921 úr gildi numin.
C. Lög um lífeyrissjóð barnakennara og ekkna þeirra.
1. gr. — Lífeyrissjóður barnakennara og ekkna þeirra, er stofnuður
var með lögum nr. 33 27. júní 1921, skal eftirleiðis starfa með því rnark-
miði og skipulagi, sem segir í þessum lögum.
2. gr. —• Sjóðfélagar eru þeir nefndir í lögum þessum, er skylt er að
greiða iðgjöld í sjóðinn og rétt eiga á lífeyri úr honuin.
3. gr. —• Sjóðfélagar eru allir barnakennarar, sem laun taka eftir
launalögum barnakennara.
4. gr. —• Stjórn sjóðsins skal skipuð þremur mönnum. Skal einn
þeirra tilnefndur af hæstarétti, og er hann formaður stjórnarinnar.
Annar skal skipaður af fjármálaráðherra, en hinn þriðji kosinn af sjóð-
félögum eða félagsskap þeirra, svo sem nánar verður ákveðið i reglu-
gerð sjóðsins.
Skipunar- og kjörtími stjórnarmanna er þrjú ár.
5. gr. — Tryggingaslofnun ríkisins annast reikningshald og dag-
lega afgreiðslu sjóðsins fyrir þóknun eftir samkomulagi hennar og
stjórnar sjóðsins.
Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Reikningar sjóðsins skulu end-
urskoðaðir af hinni umboðslegu endurskoðun án sérstakrar þóknunar.
6. gr. — Stjórn sjóðsins skal sjá um ávöxtun fjár hans. Skal ávaxta
sjóðinn í tryggum verðbréfum, svo sem ríkisskuldabréfum eða öðrum
bréfum með ríkisábyrgð, skuldabréfum bæjar- og sveitarfélaga, vaxta-