Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1942, Blaðsíða 24
22
19. maí 1930, að svo miklu leyti sem hún fellur saman við hlunnindi
þau, sem samlagið veitir samkværnt samþykktum sínum.
46. gr. — Sveitarsjóðir greiða iðgjöld þeirra manna, sem eru á
föstu sveitarframfæri.
Einnig er rétt, að greidd séu úr sveitarsjóði iðgjöld annarra þeirra
manna, sem fyrir fátæktar sakir hafa ekki getað staðið í skilum um ið-
gjöld sín, og fer um þessar greiðslur eftir reglum, sern sveitarst.jórn
skal setja og staðfestar eru af ráðherra. Ráðuneytið sernur fyrirmvnd
að slíkurn reglum til leiðbeiningar.
Gjaldið telst ekki sveitarstyrkur, en endurgreiðist, ef ástæður leyfa.
47. gr. — Ríkissjóður og hlutaðeigandi sveitarsjóður greiða, hvor um
sig, í sjóð sjúkrasamlaga 33% af hundraði greiddra iðgjalda, |)ó ekki
vfir 12 kr. á ári fyrir hvern tryggðan mann.
Hámark þetta breytist í samræmi við vísitölu kauplagsnefndar í lok
hvers ársfjórðungs.
Tillög ríkissjóðs og sveitarsjóða greiðast ársfjórðungslega eftir á og
miðast í hvert sinn við greidd iðgjöld á næsta ársfjórðungi á undan.
Þó skal þeim samlögum utan kaupstaðanna, sem innheimta iðgjökl-
in í einu lagi fyrir hálft eða heilt ár, greitt tillagið í samræmi við það.
48. gr. — Nú þykir sýnt, að sjóður sjúkrasamlags nægi ekki til að
standa straum af skuldbindingum samlagsins, og skal þá stjórn þess
snúa sér til Tryggingastofnunar ríkisins og leita aðstoðar hennar til að
rétta við hag samlagsins. Jafnframt skal stjórnin gera ráðstafanir tit
aukinnar tekjuöflunar eða að dregið sé úr hlunnindum þeim, sem sam-
íagið veitir. Þó má aldrei skerða þau lágmarksréttindi, er um getur í
33. gr. (sbr. þó 36. gr.).
49. gr. - Heimilt er ríkisstjórninni, að fengnum tiHögum frá Trygg-
ingastofnun rikisins, að stofna jöfnunarsjóð sjúkrasamlaga. Sjóði þess-
um skal aflað tekna á þann hátt, að vinnukaupendur greiði allt að ein-
um af hundraði uinsaminna vinnulauna, eftir því sem nánar verður
ákveðið í reglugerð. Tillagið til jöfnunarsjóðs skal aðeins lagt á í þeim
bæjarfélögum eða hreppum, þar sem sjúkrasamlag er stofnað. Nú er
stofnað sjúkrasamlag, eftir að jöfnunarsjóður sjúkrasamlága er stofn-
aður, og skal þá leggja samsvarandi gjald á vinnulaunagreiðslur í
hreppnum, sem svarar til þess, að sjúkrasamlag hefði verið þar frá upp-
hafi, þó með tilliti til greiðslna, er farið hafa fram úr jöfnunarsjóði
sjúkrasamlaga áður, eftir því sem ákveðið verður i reglugerð, þó aldrei
vfir 1 % % gjald í upphafi.
Jöfnunarsjóði skal stjórnað af Tryggingastofnun ríkisins. Úr
jöfnunarsjóði má greiða styrk lil einstakra sjúkrasamlaga, sem orðið
hafa fyrir svo miklum útgjöldum vegna veikinda samlagsmanna, að
sjóðir þeirra hrökkva ekki til. Veittan styrk skal sjúkrasamlagið endur-
greiða jöfnunarsjóði að hálfu á næstu fimm árum, með hækkun ið-
gjalda, ef með þarf, eða annarri tekjuöflun.