Heimili og skóli - 01.02.1942, Page 6
2
HEIMILI OG SKÓLI
Jakob Kristinsson fræðslumálastjóri:
Gæzlumenn dýrmætasta auðsins
Bemskulýður landsins er dýrmæt-
asti auður þjóðarinnar. Ef kyrkingur
kemst í hann, stendur hamingja
landsmanna völtum fæti. Og hversu
mjög sem vall-
gróður eykst og
vötn frjófga lend-
ur, sjófang auðg-
ar útgerð, at-
vinnu - framboð-
ið færist í auk-
ana, samgöngur
greikka sporið og
hendur fyllast af
fé, verður allt
þetta að háði, ef svo illa fer, að
æskulýðurinn bíður tjón á sál sinni.
Tækni, velmegun og ytri framför er
vitrum og góðum mönnum hinn
mesti gæfufengur, en ódrengjum og
illmennum greiðari leið til glæpa og
yfirgangs. Bezta trygging fyrir far-
sæld og hamingju þjóðar verður
ávalt fólgin í því, að börn hennar læri
að temja sér mannvit og afla sér
bekkingar, sem hlítir leiðsögn góðs og
göfugs hjarta.
Bemskulýðurinn, þessi dýrmætasti
auður landsmanna, er einkum í um-
sjá og varðveizlu tveggja aðila, for-
eldra og kennara. Þeim er bæði af
forsjóninni og mönnum falið að
ávaxta þennan auð. En hann er ekki
mótuð mynt. Sál hvers barns er ó-
unnin gullnáma — að mestu leyti að
minnsta kosti. Og til þess að ná í hinn
dýra málm, verður stundum að grafa
djúpt og fjarlægja og færa á braut
ýmis gildislaus og skaðleg efni. Eftir-
sóknarefni gæzlumanna auðsins er að
leita og afla hins skíra gulls. En þó er
enn meira af þeim heimtað. Þeir
þurfa og að vera eins konar gullgerð-
armenn. Gullgerðarmenn fyrri alda
leituðu með þrautseigju eftir því að
fá breytt ódýrum málmum í gull. En
góðir gæzlumenn bernskulýðsins
kosta aftur á móti kapps um að
breyta skaðlegum hneigðum og ugg-
vænum eigindum barnsins í gull
mannkostanna. Og í raun og sann-
leika er þetta starf svo tigið, mikil-
vægt og fagurt, að ekkert hlutverk
þjóðfélagins er því ágætara, afdrifa-
ríkara og ábyrgðarþyngra, því að á
því veltur einkum, hvort dýrmæt-
ustu mannkostum hallar til falls eða
vinnst leið til frekari frama, en með
þessu stendur aftur eða fellur gæfa
og sæmd alþjóðar.
Kennurum og foreldrum er fengið
í hendur eitt hið allra mikilvægasta
starf, sem til er á þessu landi. En þótt
þetta virðist ekki torskilið, vill það
þó illu heilli dyljast eða gleymast
þorra manna og stundum einnig
kennurum og foreldrunum sjálfum.
Kennurum er vorkunn, þótt svo
kynni að fara. Hátt og í hljóði er tal-
að um, að barnaskólar sé gagnslitlir,
Jakob Kristinsson.