Heimili og skóli - 01.02.1942, Síða 17
HEIMILI OG SKÓLI
13
Jóharm Þorkelssort, héraðslækrtir:
Skólalækningar
Nú síðasta mannsaldurinn hafa
skólastjórar og þeir menn, sem fara
með æðstu stjórn fræðslu- og heil-
brigðismála, séð betur og betur hve
nauðsynlegt og gagnlegt það er, að
haft sé sem allra bezt eftirlit með
heilsufari skólanemenda þann tíma,
sem skólavist stendur yfir, og verður
þörfin í þessum efnum því meiri, sem
skólarnir eru fjölmennari og skóla-
tíminn lengri.
Tvær höfuðástæður gera þetta
lækniseftirlit svo nauðsynlegt og
sjálfsagt. I. Heilsufar þeirra barna og
unglinga, sem eru heilsuveil eða hald-
in einhverjum kvillum.
II. Hætta sú, sem fjölmennum
skóla ávalt er búin af útbreiðslu
næmra sjúkdóma og óþrifakvilla.
Heilsufar barnanna sjálfra og ungl-
inganna á skólaárunum ætla ég ekki
að fara mikið út í hér, en aðeins geta
þess, að ýmsir kvillar eru algengir á
þessu skeiði æfinnar, t. d. sjóngallar,
eitlaþroti, hryggskekkja og slappleiki
hryggvöðva, tannskemmdir, ofvöxtur
kokeitla, berklaveiki o. fl. Það gefur
að skilja að nauðsyn ber oft til að
börnum, sem eru að einhverju leyti
heilsuveil sé hlíft að einhverju eða
öllu leyti við skólagöngu, stundum
geta kvillar þessara nemanda verið
þess eðlis, að sé þeim (þ. e. nemend-
unum) ekki hlíft við erfiðri og langri
skólasetu, geta þeir orðið fyrir heilsu-
tjóni, er þeir vart bíða bætur síðar í
lífinu og það er einmitt eitt af hinum
mikilsverðustu störfum skólalæknis-
ins, að fyrirbyggja að slíkt komi fyrir.
Eg skal nú ekki fara neitt rækilega
út í þennan lið skólalækninganna, en
aftur á móti taka hitt til nánari at-
hugunar, hvemig draga má úr út-
breiðslu næmra sjúkdóma og óþrifa-
kvilla með lækniseftirliti í skólunum.
Sá sjúkdómurinn, sem ég ætla þá
fyrst að minnast á, er berklaveikin.
Sú leið, sem farin er til varnar út-
breiðslu þessa alvarlega sjúkdóms
meðal skólafólks, er að gera svo-
nefnda berklaprufu (tuberculin reak-
tion) á öllum börnum eða unglingum
skólans. Þau börn, sem reynast
berkla-jákvæð (tuberculin positiv)
eru svo rannsökuð með röntgen-
geislum, annað hvort gegnlýst eða
röntgenmynduð, og sýni það sig við
slíka rannsókn, að eitthvert barn
sé haldið virkri berklaveiki, er
það tekið úr skólanum, bæði vegna
þess að barn, sem haldið er virkri
berklaveiki, þolir ekki þá áreynslu,
sem skólagöngunni er samfara, og svo
til öryggis því að það ekki geti smitað
aðra nemendur skólans, því að þótt
algengast sé, að slíkir nemendur hafi
lokaða berkla (þ. e. ekki smitandi)
þá getur alltaf viljað til að þannig