Heimili og skóli - 01.02.1942, Side 18

Heimili og skóli - 01.02.1942, Side 18
14 HEIMILI OG SKÓLI lokaðir berklar opnist og barnið þá smitað fleiri eða færri af skólasyst- kinum sínum, enda eru dæmi þess að þetta hafi skeð í skólum hér á landi. í öllum barnaskólum landsins er lögboðin læknisskoðun, að minnsta kosti 1 sinni á ári, og í þeim skólum, sem slík læknisskoðun er ekki lög- boðin, eiga nemendur að koma með heilbrigðisvottorð er þeir koma í skól- ann, en hvorugt þetta er nægileg trygging fyrir því, að ekki geti verið mikil hætta á berklasmitun í skólan- um, því að bæði getur nemandinn hæglega verið haldinn berklaveiki þótt ekki sé neitt að finna að honum við skólaskoðun, ef ekki er gerð rönt- genskoðun, og svo getur hann líka sýkst af berklum eftir að skólaskoðun hefir farið fram og verið orðinn berkla-smitberi eftir 2—3 mánuði, og má af þessu ráða, að eigi að vera fullkomið öryggi um, að berklasmit- un sé bannfærð innan vébanda skól- anna, verður að vera hvortveggja, greiður aðgangur að röntgenrann- sóknum, og svo stöðugt eftirlit í skól- unum með þeim, sem eru eitthvað grunsamir um berklaveiki, eða sem eru frá berklaveiku eða grunsömu umhverfi. Mjög mikilsvert í þessu sambandi er að halda góða spjaldskrá yfir nemendur og rannsaka sérstak- lega nákvæmlega þá, sem verið hafa berkla-neikvæðir, en svo allt í einu, við einhverja rannsóknina, eru orðn- ir jákvæðir (ný positivir). Sé leitað vel í nánasta umhverfi slíkra nem- enda finnst oftast einhver smitberi. Tekst oft á þenna hátt að handsama berklasmitberan, sem enginn hefir vitað um áður. Sérstök ástæða er til að gefa nán- ar gætur að hinum ný berkla-já- kvæðu nemendum, því að tiltölulega mikil hætta er á virkri berklaveiki við slíkar nýsmitanir og þá nauðsyn- legt að taka slíka nemendur til með- ferðar þegar í upphafi sjúkdómsins. I barnaskóla Akureyrar, sem nú telur um 700 börn, hefir, þau 4 ár, sem ég þekki til, á hverju ári orðið að meina einhverjum börnum skóla- setu vegna berklaveiki, sem fundist hefir hjá þeim við rannsókn skóla- læknis, og hefir ávalt tekizt að finna sjúkdóminn hjá þessum börnum, áð- ur en hann væri kominn á það stig, að öðrum nemendum gæti stafað hætta af (þ. e. smitast). Um aðra næma sjúkdóma er það að segja, að mjög mismunandi geng- ur að verja nemendur fyrir útbreiðslu þeirra innan vébanda skólans, og fer það allt eftir því hvaða sjúkdóm um er að ræða. Það er t. d. fremur auð- velt að hefta algerlega útbreiðslu skarlatsóttar, en svo gott sem ómögu- legt að verjast inflúenzu eða kikhósta þegar þeir sjúkdómar á annað borð eru farnir að gera vart við sig. Hvað viðvíkur smitun af kossageit, kláða og lús í skólanum, má segja, að ekki sé hægt að fullyrða að slík smit- un geti ekki átt sér stað í einstökum undantekningar-tilfellum, en óhætt er að fullyrða, að í barnaskóla Akur- eyrar eru slíkar smitanir afar sjald- gæfar, enda gerir skólinn allt, sem hægt er að gera, til að fyrirbyggja að slíkt geti komið fyrir.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.