Heimili og skóli - 01.10.1942, Qupperneq 4

Heimili og skóli - 01.10.1942, Qupperneq 4
66 HEIMILI OG SKÓLI Hin forna þjóðmenning vor, sem hefir gert landið frægt meðal erlendra menningarríkja, var heimilismenning. H vert heimili var lítið ríki út af fyrir sig, sem reyndi að vera í flestu sjálfu sér nóg. Og það hefir ekki aðeins verið hókleg menning, sem hefir blómgazt í hinum dreifðu bændabýlum, heldur einnig verkleg. Þegar kvartað er um það, að hin ís- lenzka þjóð hafi ekki staðizt vel þá raun að búa með erlendu herliði í sínu eigin landi, þá er orsökin fyrst og fremst hnignun hinna gömlu, þjóð- legu heimila. Meiri losarabragur er á þjóðlífinu, og sú skapfesta, og það siðferðisþrek, sem einkenndi uppeldi hinna gömlu heimila, hefir sljóvgazt. Þessvegna hefir sjaldan hvílt eins mik- il ábyrgð og nú á heimilunum um uppeldi æskulýðsins. Uppeldisfræðingar telja, að skap- gerð barnsins mótist lang mest fyrstu tvö til þrjú árin. Og um sex ára aldur sé mótun skapgerðarinnar að mestu lokið. Af þessu leiðir, að skólarnir, sem fá börnin til áhrifa og fræðslu nokkrar klukkustundir á dag, nokk- urn hluta ársins, verða þess tæplega megnugir að hafa djúptæk áhrif á þau. Hvert barn hlýtur því að bera ein- kenni heimilis síns og umhverfis, ef það er rét.t, að skapgerð þess hafi að mestu mótazt áður en það kom í skól- ann. Örlög þess eru þá þegar að miklu leyti ráðin. Þessvegna gengur oft svo erfiðlega að bæta fyrir mistök, sem hafa orðið á uppeldinu fyrstu ár æv- innar. Þegar þetta er haft í huga, þá er það merkilegt, hve lítið hefir verið gert til að leiðbeina foreldrum við uppeldis- starfið. Það er þó augljóst, að því meiri þekkingu, sern foreldrarnir hafa á þessu ábyrgðarmikla starfi sínu, því meiri líkur eru tii að það takist giftu- samlega. — Hér skal leitast við, að drepa á þrjú atriði til thugunar, varð- andi heimi'i og heimilislíf. Heimilishættir. — Það er fljótséð, þegar kornið er á ókunnugt Iieimili, hvernig heimilishættirnir eru. Sérstak- lega bera börnin þess ljós merki. Þar, sem hollar heimilisvenjur ríkja, er eins og allt gangi af sjálfu sér. Það er mik- ilsvirði, áð fótaferð, háttatími og tnál- tíðir sé reglubundið. Það hefir góð á- hrif á börnin og venur þau á reglu- semi. Það ætti hver móðir að muna, að hollar heimilisvenjur skapa ekki aðeins frið og reglu á heimilinu, held- ur er hún um leið að gefa börnum sínum gott veganesti út í lífið. Vér kennarar, sem fáum börn í skóla frá mismunandi heimilum, get- um oftast sagt, hvernig heimilið er, eftir að hafa kynnst barninu ofurlítið. Barn, sem er óhlýðið og skeytingar- laust með það, sem því er falið að gera, ber vott um slæma heimilishætti. Ó- stundvísi vill líka oft loða við það. Og aldrei verða foreldrar nóesamlega varaðir við þeirri hættu, að ala börn upp í hóflausu eftirlæti, svo að þau hafi í raun og veru alla stjórn á heim- ilinu. — En með hitt barnið, sem er kurteist í viðmóti, samvizkusamt, hlýðið og vandvirkt, bregzt það sjaldan, að það er frá góðu heimili. Kennarar taka oft eftir því, að sömu börnin koma oftast syfjuð í skólann að morgni og eru slöpp og eftirtektar- laus. Enginn vafi er á því, að þessi

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.