Heimili og skóli - 01.10.1942, Síða 5
HEIMILI OG SKÖLI
07
börn eru frá heimilum, sem hirða ekki
um það, að láta þau hátta nógu
snemma á kvöldin. Við þetta líða
börnin oft nreira en menn gera sér
grein fyrir. Það hefir ill álrrif á tauga-
kerfið og alla líðan þeirra.
Híbýlaprýði. — Fyrstu árin hefir
umhverfið mikil áhrif á börn. Það er
því mikils virði, að heimilin séu vist-
leg; börnunum þykir þá vænna um
þau og verða þeim nánar tengd. Og
gleðiefni má það teljast, að á síðari
árum hefir vaknað talsverður áhugi
fyrir aukinni híbýlaprýði — að gera
heimilin aðlaðandi og smekkleg. Og
margt ungt fólk, sem nú er að stoína
heimili, hefir opin augu fyrir þessu.
Nú líta sumir svo á, að þegar taiað
er um híbýlaprýði, sé þar einurtgis
átt við dýr og vegleg húsgögn, sem að-
eins efnaða fólkið geti veitt sér. Fn
þetta er nresti misskilningur. Heimili
geta verið vistleg, hreinleg og aðlað-
andi, þótt fá og ódýr húsgögn séu þar.
Það fer ekki eftir efnahag. Fjöldi fá-
tækra heimila eru fyrirmyndarheimi!i
hvað þetta snertir. En því miður virð-
ist sumt fólk alveg sljótt fyrir því,
hvernig umhorfs er í kringum það.
Það ber vott um lágt andlegt menn-
ingarstig, en á ekkert skylt við auð-
æfi eða fátækt. Þroskuð sál unir ekki
vel hag sínum nerna i fögru umhverfi.
Ef umhverfið er í ósamræmi við hana,
breytir hún því til hins betra.
En það er ekki nóg, að snoturt sé
umhorfs innan húss, ef allt er fullt af
rusli og ósamræmi úti fyrir. Sem betur
fer fjölgar blómagörðum og trjálunct-
um kringum íbúðarhús, víða hér á
landi. Það er mikilvægt atriði, það
setur fagran svip á hvert heimili og
er líklegt til hollra uppeldisálirifa.
Börn, sem venjast á að hlúa að gróðri
blcima og trjáa, rækta jafnframt and-
legan gróður í sinni eigin sál.
Andrúmsloft. — Á sunrum heimi!-
um ríkir alltaf sá andi, að þar er got:
að vera. Hlýleiki og skilningur ein-
kennir þar alla sambúð manna á milli.
Fólkið er hjálpsanrt og fórnfúst hvert
við annað. í slíku andrúmsíofti er
hollt fyrir börn að lifa og hrærast.
En annarstaðar er þessu gagnstætt
farið. Þar er eins og andi sundurlyndis
og úlfúðar sé fastur förunautur. Öll
áhrif slíkra heimila á börn og óþrosk-
aða æsku eru óheppileg, þar sem þau
æsa hinar grófari kenndir, en hlúa
ekkert að þeinr viðkvæmari og göf-
ugri.
Oftast eru það foreldrarnir, sem
mestu ráða um andrúmsloft heimilis-
ins. Margir feður eru þó langan tíma
dagsins burtu við störf sín, og verður
það því meira hlutskipti móðurinnar,
að setja svip á það. Það er hún, sem
veitir börnunum fyrstu kennsluna í
að lifa í þessum heimi. Það er hún,
sem syngur við þau fyrstu vögguljóð-
in, og skapar það andrúmsloft í kring
um þau, sem mótar sálarlíf þeirra til
gciðs eða ills. Það er oftast hún, sem
kennir þeim fyrstu bænarorðin og
lyftir hug þeirra til æðri heima. — F.n
ég hygg, að fæstar mæður geri sér fyiií-
lega ljóst, hve örlagaríkt starf þeirra
er við uppeldi barnanna og stiorrr
heimilisins.
Af þessu er það augljóst, að mennt-
un mæðranna, og undirbúningur und-
ir lífsstarf þeirra, er mjög mikilvægt
atriði. Fjölgun húsmæðraskóla hér á
landi, er eitt af nauðsynjamálum