Heimili og skóli - 01.10.1942, Page 6
68
HEIMILI OG SKÓLI
Björn H. Jónsson, skólastjóri:
Skipting barna í bekki
Það hendir alloft, einkum í byrjun
skólaárs, að sumir foreldrar eru óá-
nægðir yfir því, hvar börn þeirra eru
sett í bekk í skólanum.
Það, sem óánægjunni einkum veld-
ur, virðist oftast vera það, að börnin
eru sett í B- eða C-deild bekkjanna,
eða þá, að jafnaldrar þeirra eru e. t. v.
sett í bekk ofar. En vegna þess, að
óánægjan er oftast af misskilningi
sprottin, eða athugaleysi, þykir rétt að
gjöra nokkra grein fyrir því, eftir
hvaða reglum er farið, þegar börnun-
um er raðað í bekkina.
En fyrst skal þetta tekið fram:
Það ætti öllum að vera það ljóst, að
mjög nauðsynlegt er fyrir börnin, og
betra fyrir kennarann, að þau börn,
er saman eiga að vera í bekk, séu á
sem allra líkustu reki og standi sem
jafnast að vígi. Að öðrum kosti er
meir en hæpið, að nokkur árangur ná-
ist, og mikil hætta á því, að þau
þroskaminni í hópnum missi áhuga og
dofni upp við námið.
Það eru og einnig um það reglur
settar, hvað hver árgangur skuli nema
í hverri námsgrein, og verður því að
láta jafnaldra börn fylgjast að, eftir
því sem unnt er.
Það, sem einkum er eftir farið, þeg-
ar um bekkja- eða deildaskiptinguna
þjóðarinnar. Með þeirri ráðstöfun
væri stutt að því, að við getum eignast
sem flest góð heimili.
ræðir, er þetta, sem nú skHl greina.
Hverjum árgangi er að jafnaði skipt
í deildir. Fram til 10 ára aldurs fer
skiptingin einkum eftir lestrarleikni
barnanna, en síðar meir eftir alhliða
þroska, og er þá einkum miðað við
það, hvernig börnin eru í reikningi.
Þegar lestri sleppir, er engin náms-
grein eins erfið með ósamstæð börn,
eins og reikningurinn. Hafa jafnan
margir haft þá sorgarsögu að segja, að
þeir hafi lítil eða engin not haft reikn-
ingskennslunnar á skólaárum sínum,
vegna þess, að þeir gátu, af einhverj-
um ástæðum, ekki fylgzt með bekkjar
systkinum sínum. Eftir lestrarleikn-
inni verður líka að fara nokkuð í efri
bekkjunum vegna þess, að stirðlæsu
börnin hafa miklu meira fyrir að lesa
það, sem þau eiga að læra, og" verða
því að hafa afskammtaðra verkefni en
þau, sem fleygari eru.
Einstöku börn, sem skara fram úr,
eru sett bekk ofar (með næsta aldurs-
flokki fyrir ofan) vegna þess, að þau
eiga enga samleið með jafnöldrum sín-
um. Það kemur og stundum fyrir, að
setja verður barn í yngri aldursflokk,
vegna þess, hve skammt það er á veg
komið, þegar það kemur í skólann.
Segja má, að ástæðurnar til þess, að
leikni barnanna er svo misjöfn, séu
einkum þrjár:
1. Misjafn undirbúningur.
Börnin eru all misjafnlega undirbú
in, þegár þau konia í skólann. Þarf