Heimili og skóli - 01.10.1942, Síða 8

Heimili og skóli - 01.10.1942, Síða 8
70 HEIMILI OG SKÓLI ekki að eyða orðum frekar að þeirri ástæðu vegna þess, að þar eiga foreldr- arnir allt við sjálfa sig. 2. Misjafn þroski. Börn eru mjög misjafnlega bráð- þroska, eins og allir vita.. Og það er misþyrming á seinþroska börnum, að láta þau vera í bekk með þeim börn- um, sem bráðþroska eru, og þegar það er gert, verður afleiðingin venjulega sú, að í lok skólaársins er munurinn á leikni seinþroska barnsins og hinna, orðinn miklu meiri en þegar byrjað var. En verst af öllu er þó það, að eins og áður er drepið á, missa þessi sein- færu börn venjulega kjarkinn og trúna á sig sjálf og gefast svo upp. Er þá venjulega öll von úti um framför, og aðstaða þeirra öll orðin hin versta. 3. Misjafnar gáfur. Þá er nú komið að því atriðinu, sem viðkvæmast er. Allir vita og kannast við það, að gáfnafar barna er harla misjafnt, þó að það mál verði eðlilega viðkvæmt hverjum manni, þegar hans eigin börn eiga í hlut. En tæplega verður til þess ætlast, að það sé á færi nokkurs kennara, að grípa fram fyrir hendur forsjónarinnar í þessum efn- um, fremur en öðrum. Eina ráðið til þess, að seinþroska og miður gefnu börnin hafi skólaverunn- ar not, er það, að velja þau börn sam- an, sem samleið eiga, og sníða svo vinnuna og verkefnin við þeirra hæfi. Nokkur börn eru svo á takmörkum leikni og hæfileika, að orkað getur tví- mælis um það, í hvaða deild þau eiga að vera. En öll sanngirni mælir með því, að kennararnir, sem þekkja öll börnin í skólanum, eigi þó hægara með að dæma um slíkt, en foreldrar, sem aðeins þekkja sín eigin börn. Þess skal og getið, að sömu náms- greinarnar eru kenndar í báðum eða öllum deildum, sama aldursflokks, og kennslustundafjöldi á viku er hinn sami. En vitanlega er þá venjulega farið yfir minna í seinfærari deildunum. Því ber að treysta, að foreldrar skilji þetta og sjái, að það er ekki um að ræða neitt handahófsval í bekkina, enda mun hver skólastjórn, og hver kennari gera sér far um, að það sé sem allra samvizkusamlegast gert og rétt- látast. Það er og víst, að ekkert er góð- um kennara meira áhugamál en það, að finna ráð til þess, að skólavistin geti orðið þeim börnum að sem mestu liði, er orðið hafa útundan, annað- hvort um undirbúning eða hæfileika, eða hvorttveggja. Til útsölumanna og kaupenda. Vegna geysilegrar hækkunar á út- gáfukostnaði á þessu ári, er ritinu brýn nauðsyn á, að kaupendur þess greiði það sem allra fyrst. Ennfremur eru allir þeir, sem hafa fengið ritið sent, og aldrei hafa látið afgreiðsluna vita um söluárangur, beðnir að gera það hið allra fyrsta. Afgreiðslumaður. Grískur spekingur hefur sagt: — Leitum þeirra unaðssemda, sem koma á eftir áreynslunni, en ekki þeirra, sém á undan henni fara. —

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.