Heimili og skóli - 01.10.1942, Síða 9
HEIMILI OG SKÓLI
71
Friðrik Hjartar, skólastjóri:
Hvað læra yngstu börnin í
barnaskólanum ?
Meðan börnin eru í yngri bekkjum
barnaskólans, einkum 8 og 9 ára
bekkjum, er ekki óalgengt, að foreldr-
ar hafi orð á því, að börnin læri lítið,
jafnvel minna, en í tímakennslunni
fyrir tveim árum, þá hafi þau verið
farin að læra biblíusögur og náttúru-
fræði. —
í námsskrá skólans fyrir 7 ára bekki
eru námsgreinar taldar þessar: Lestur,
skrift, reikningur og átthagafræði.
Þar sem ég tel líklegt, að allmörg-
um sé óljóst, hvað átt er við með orð-
inu átthagafræði, vil ég birta hér það,
sem námsskráin segir um hana (átt-
hagafræðina):
„Markið er:
1. að glæða hæfileika barnsins og
löngun til að afla sér þekkingar.
2. að barnið geti gert sér og öðrum
glögga grein fyrir því, sem fyrir
það ber og því býr í brjósti.
3. að barnið öðlist við eigin reynd
þekkingu, sem bóklegt nám verði
byggt á í efri deildum skólans.
Hér skal drepið á hið helzta, sem
ætlazt er til, að barnið hafi numið,
þegar átthagafræðinni lýkur (í 7—8
og 9 ára bekkjum):
1. Barnið þekki helztu liti, lögun
og aðra höfuðeiginleika liluta;
2. kunni helztu mælieiningar tíma
— klukkan, dagar, vikur, mánuðir, ár-
tal, öld; — verðs — kr. aur. — og efnis
— metrar, kg., lítrar;
3. Viti hið helzta um daglegt líf og
staðhætti umhverfisins — áttir, legu
fjarðarins (og kaupstaðarins), landslag,
jarðveg, örnefni, veðráttu, atvinnu-
vegi, viðskipti, helztu mannvirki;
helztu plöntur og dýr, gróður, dýralíf
og skilyrði þess, ársfjórðunga, orsök
dags og nætur, merkisdaga ársins,
helztu kirkjulegar hátíðir; þekktustu
stjörnur og stjörnumerki; landnám
fjarðarins og helztu sögur, sem við
hann eru tengdar; helztu líkamshluta
barnsins, almenna hollustuhætti,
þrifnað og kurteisi.
4. skilji helztu landfræðileg og nátt-
úrufræðileg heiti og hugmyndir og
þekki tákn þeirra á landabréfum og
myndum, enda þótt veruleikinn, sem
þau tákna, sé ekki í umhverfi barnsins
— t. d. haf, land, strönd, hálendi, lág-
lendi, hraun, skógur, á, foss, vatn,
sveit, borg, atvinnuvegur o. s. frv.
spendýr, fugl, fiskur, jurt, helztu lík-
amshlutar jurta og dýra o. s. frv.
5. nokkur sönglög og kvæði, sem við
þetta eru tengd (t. d. mann, stað, dýr,
árstíð).
Þótt ekki sé fleira nefnt, sést, að hér
er um mikið námsefni að ræða og
merkilegt. Munu og allir kennarar á
einu máli um, að slík viðfangsefni,
sem þessi, séu 7—9 ára börnum hollarí