Heimili og skóli - 01.10.1942, Qupperneq 11

Heimili og skóli - 01.10.1942, Qupperneq 11
HEIMILI OG SKÓLI 73 hendi og um margt við ramman reip að draga. Jafnvel smáorð þarf að kenna og æfa t. d. þau, þetta, sem mjög mörg börn skrifa: þaug, þettað — og bera þannig frarn. Skýr fram- burður er því eitt af því, er skólinn þarf að kenna yngri börnunum. Tek- ur slíkt oft langan tíma. — Óskandi væri, að livert einasta heimili, er börn hefur í umsjá, gerði sér ljóst, hversu mikið er í húfi um móðurmálskennsl- una, að heimilið leggi hönd á plóginn og hjálpi skóianum og börnunum í þessum efnum. Mér er ljóst, að að- staða rnargra heimila til að sinna börnum sínum og fylgjast með námi þeirra, er í torveldasta lagi. En góður vilji er löngum sigursæll, og mundi oft finna tíma til að segja stutta sögu, láta börnin geta gátu, finna orð, er ríma (borð, orð), raula vísu o. fl. o. fl. Síðast, en ekki sízt, ættu heimilin að meta kennslu í móðurmálinu til jafns við dönsku, biblíusögur, landa- fræði, náttúrufræði og aðrar náms- greinar, með því að glæða ást barn- anna á móðurmálinu, sem pabbi og mamma, afi og amma og forfeðurnir hafa talað og varðveitt, málið, sem hver íslenzk móðir hefur lijalað við barn sitt og hvíslað að ástarorðum. — Öllum ætti að vera ljúft að gera skyldu sína í þessum efnum. Þá er reikningur eitt viðfangsefni yngri barnanna í skólanum. Mörgum foreldrum finnst, að mjög hægt sækist í þeim efnum, börnin séu alltaf að stagla hið sama: samlagning, frádrátt, margföldun og deilingu. — Það mundi verða of langt mál að sýna fram á, hve geysilegt nám einmitt yngri börnin verða að leysa af hendi í reikningi, svo að undirstaðan sé trygg og kunnáttuleysi valdi ekki töf- um, er í eldri bekkina kemur. — Er skoðun mín sú, að margir foreldrar séu alltof óþolinmóðir í sambandi við reikningsnám yngri barnanna, því að þar má sízt af öllu fara offljótt yfir, heldur verður að þaulæfa hvert atriði og dvelja nógu lengi við allar reikn- ingsaðferðir einskonartalnanna, með lágum tölum lengi fyrst, unz mikilli leikni er náð. — Aldrei má gleyma, að ekki er það dæmi til, er leyst verður án þess að leggja saman, draga frá, margfalda eða deila. Leikni í þessum reikningsaðferðum þurfa börnin að ná sem fyrst, helzt í yngri bekkjum skólans. — Foreldrar, verið þolinmóð- ir þótt yður finnist hægt farið yfir í reikningi — það er Itezt fyrir yngri börnin. Þau eiga t. d. að læra sam- lagningu svo vel, að þau þurfi ekki að telja á fingrunum 13—14 ára gömul, ef þau eiga t. d. að leggja saman 8 og 7 eða 18 og 17, þau eiga að kunna þetta eins og þau kunna að 2 og 2 eru 4. Tilgangur minn með þessari smá- grein er að gera foreldrum og forráða- mönnum barna það sem ljósast, að yngri börn skólans hafa bæði nægileg og mikilsverð námsefni með höndum, þótt þau læri hvorki biblíusögur, náttúrufræði eða landafræði. Því bet- ur, sem börnin rækja nám sitt í yngri bekkjunum, því betri árangri ná þau, er í efri bekkina kemur, og því auð- veldara mun þeim reynast að rækja vel þau viðfangsefni, er bíða þeirra þar.

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.