Heimili og skóli - 01.12.1944, Side 8
84
HEIMILI OG SKÓLI
orð skáldsins, að „Rótarslitinn visnar
vísir, þótt vökvist hlýrri morgun-
dögg“. Hvað veldur þeim ósköpum,
sem heimurinn þjáist nú af annað en
það, að graunnur hinnar marggylltu
menningarhallar er eitthvað ótraust-
ur? Maðurinn festir dýpstu ræturnar
í heimilinu. Sá sem á sér engar rætur
þar, er rótlaus og verður það alltaf.
Eg veit, að hér er við ramman reip
að draga í þéttbýlinu, þar sem fátt eitt
hefur næði til að gróa, og þess er ekki
að dyljast, að við erum stödd þar á
hinum háskalegustu vegamótum, en
við skulum vona, að okkur takist að
gera heimilið að þeim kastala menn-
ingarinnar, sem það á og þarf að vera.
Mistök og þróttleysi heimilanna verða
örlagaríkari fyrir þjóðina en öll önn-
ur mistök, nema ef vera skyldu mis-
tök í því efni að vernda frelsi sitt út á
við, en hinu verður heldur aldrei
gleymt, að allt hið bezta og göfugasta,
allt það, sem gerir þjóðina að göfugri
og sterkri þjóð, á rætur sínar við arin
heimilisins. Oll vandræðabörnin í
skólunum koma frá lélegum lieimil-
um. Heimilum, sem eru í upplausn af
hvers konar óreglu og skorti á jafn-
vægi. En beztu skólaþegnarnir eru frá
traustu, hlýju og stjórnsömu heimil-
unum, þar sem kyrrð og friður ríkir,
og börnin eru vanin við frá blautu
barnsbeini að lifa eftir föstum og
ákveðnum fögum. Þau eru frá heim-
ilum, þar sem móðirin er miðdepill-
inn og faðirinn hefur einnig tíma til
að sinna bömum sínum, tala við þau,
gleðjast með þeim og hlusta á þau.
Þau eru frá heimilum, þar sem heimil-
ishelgi og heimilisfriður ríkir alla
daga ársins.
Ósvikin lífsgleði.
Þarna er alltaf að gróa í sálum
barnanna. Sögur og ævintýri frjóvga
ímyndunarafl þeirra og hugsun alla,
og hljóðlátar kvöldstundir á slíkum
heimilum, þar sem foreldrarnir hafa
tíma til að ræða við börnin, fylgjast
með námi þeirra og áhugamálum, eru
eins og andlegt, gróandi vor fyrir þau.
Þessi börn verða íhugul, hugsandi og
spyrjandi. Það ríkir jafnvægi og ró í
sálum þeirra. Þennan frið og innra
jafnvægi flytja þau svo með sér í skól-
ann, eru þar hæglát og prúð og kunna
að hlusta og taka eftir því, sem \ ið þau
er sagt.
}á, á slíkum heimilum gróa mörg
lífgrös. Hvergi nema þar er hægt að
leggja traustan grundvöll að trúarupp-
eldi barnanna, sent haft getur djúp-
tæk áhrif á andlegan vöxt þeirra og
þroska. F.n verði börnin ekki fyrir