Heimili og skóli - 01.12.1944, Qupperneq 16

Heimili og skóli - 01.12.1944, Qupperneq 16
92 HEIMILI OG SKÓLI og stæltur störf sín rækir, hann storkar hverri þraut. Hann ber sitt manndómsmerki. Hann nrarkar öðrum slóð. Hann vex með sínu verki. Hann vitkar sína þjóð. III. — ----Næst er þá að gá að, hvaða námsgreinar koma fyrir og svo að líta yfir lexíurnar í lærdómsbókum barn- anna. Ég verð að segja það afdráttar- laust, að ég kann illa við að heyra kennara spyrja börnin: Hver er lexían í dag? Það hlýtur að vera eitthvað áfátt um kennslu-undirbúninginn, þegar kennarinn sjálfur veit eða man ekki, hvað hann á að kenna, þegar stundin er að byrja. Ég skil sannast sagt ekki þá kennara, sem geta farið í nokkra kennslustund án rækilegs undirbúnings, helzt skriflegs. — Það er ömurleg sjón að sjá kennara, sem þarf að hafa kennslubókina að staf til að styðjast við. Kennarinn þarf vitan- lega að vera svo vel að sér bæði í kennslubókinni og námsgreininni, að bókin sé honum á þeirri stundu sem þýðingarlaus hlutur. En það fæst ekki ókeypis. Það kostar „lestur og aftur lestur og ennþá lestur“. Staðgóð þekk- ing og vandaður undirbúningur und- ir hverja kennslustund skapar kenn- aranum hins vegar siðferðilegan styrk og eykur honum álit og virðingu með- al barnanna, einkum þó í hærri bekkj- um skólanna. En hverfum þá aftur að sjálfum undirbúningnum. Að loknum lestri lexíunnar og einhvers sama efn- is utan við hana, þá kemur til álita, hvernig haga skuli kennslunni. Ör- uggast reyndist mér, að búa til og skrifa nákvæma kennsluseðla og hafa þá með mér í tímana. En auðvitað „slær hver með sínu lagi“ í þeim efn- iim sem öðrum. Sérhverri kennslu- stund þarf að haga svo, að færi gefist til: 1. að rifja upp efni frá síðustu kennslustund í greininni; 2. að yfirheyra einstök börn; 3. að beina nokkrum spurningum til bekkjarins í heild; 4. að eiga sarntal við börnin um efn- ið, — og 5. að útskýra efni til næstu stundar. Hér við bætist svo, að í ýmsum greinum, svo sem sögu og kristnum fræðum, þarf að vinnast tími til söngs o. fl. Þetta á að vera sæmilega auðvelt, þegar efnið er vel lesið og áður rætt, en ella torvelt, og verður að taka tillit til þess, þegar kennsluseðlar eru samd- ir — að svo miklu leyti, sem hægt er. Auk þess, sem hér er sagt, þarfnast t'issar greinar sérstaks undirbúnings. Svo er t. d. unr kristnu fræðin. Það þarf að koma fallegum Kristsmyndum fyrir á vegg gegnt nemendunum og vera búinn að því, áður en kennslu- stundin hefst. Helzt ekki sömu mynd- irnar alltaf, heldur að skipta um eftir föngum og hafa ætíð þá myndina á bezta staðnum, sem næst stendur efn- inu, er tala á unr í tímanum. Ágætar nryndir til þessarar notkunar fengust lrjá Evangeliske Fosterlandsstiftelsen í Stokkhólmi og kostuðu þær sáralítið. Sömuleiðis má fá ágætar veggmyndir frá Ameríku. Falleg mynd gleður og hrífur unga og óspillta sál og eykur áhrif kennslunnar. Mörg þekki ég dæmi þess, að litlu stúlkurnar komu með sveiga úr fegurstu blómunum,

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.