Heimili og skóli - 01.12.1944, Síða 18

Heimili og skóli - 01.12.1944, Síða 18
94 HEIMILI OG SKÓLI Snorri Sigfússon: Merk spor Eitt hið glæsilegasta skólaheimili í sveit er nú risið og að fullu reist í tífnum minnsta hreppi Eyjafjarðar- sýslu, Arskógshreppi. Var þar hafizt handa fyrir 6 árum, þótt aðalfram- kvæmdirnar féllu á mestu dýrtíðarár- in. Auk kennslustofa, kennarabústað- ar og heimavistarherbergja, er sam- byggður við skólahúsið mjög stór og fullkominn leikfimis- og samkomu- salur, og á því byggingin að þjóna bæði þörf barnanna og hinna eldri. En þannig er þessu fyrirkomið, að skólinn er algjörlega út af fyrir sig í byggingunni og liitt, er að sainkom- um og notkun eldra fólksins snýr, einnig sér um allt sitt. Þetta er höfuð- kostur, því að samkrull allt með skóla og samkomur er óheppilegt, og ein- mitt þess vegna hafa menn oft dæmt slíkar sambyggingar óhæfar, að ekki hefur frá upphafi verið séð fyrir því í byggingunni, að hvor aðilinn um sig væri sem sjálfstæðastur um sína notk- un. Á hinn bóginn er það svo, að varla er að búast við því í fámenni og dr'eif- býli, að hægt sé að byggja myndarlegt skólaheimiH með íþróttasal og svo annað hús fyrir samkomur eldra fólks- ins. Og það er a. m. k. víst, að þar sem hvorki er til skólahús né samkomu- hús, þar á skólahúsið með íþróttasal að rísa fyrst og reyna samstarf hinna eldri og yngri. Ef það þá reyndist ó- fært, verður samkomuhúsið að byggj- ast síðar meir. En því má eigi gleyma, að það er hálfgerð menningarleg upp- gjöf að halda því fram, að bragur samkomu- og skemmtanalífs muni eigi batna frá því, sem nú er, með batn- andi samkomustöðum. Og það verður að vænta þess, að hinir fullorðnu þegnar, sem eitt.sinn voru skólaþegn- ar á staðnum og þótti vænt um hann, muni síðar hlífa honum við hvers konar vansæmd og telja það með heiðri sínum og sveitarinnar, að þessu menningarheimili sé haldið hreinu og það sé í heiðri haft. Þetta munu þeir ætla sér að reyna á Árskógsströnd, og vonandi tekst það. En það er sannar- lega vert að ininnast þess, að það er lítill hreppur, sem þetta stórmyndar- lega skólaheimili liefur reist, og það er jafnframt víst, að hann á það nú því nær skuldlaust. Hvað myndu þá hinar stóru og efnaðri sveitir geta gert, ef þar væri fyrir hendi jafnmikill áhugi og skilningur á nauðsyn þess, að bæta úr slæmu ástandi, er nú ríkir allt of víða í þessum efnum? Þá hefur einnig á hinum síðustu missirum risið veglegt skólaheimili við Barðslaug í Fljótum. Hafa þar þrír aðilar verið að verki: Haganeshrepp- ur, ríkið og kvenfélagið á SiglufirðH sem notar heimilið fyrir dvalarstað siglfirzkra barna að sumrinu. Er þetta hið prýðilegasta heimili, sem vantar þó enn fimleikasal. Að þessu heimili ganga þau börn, sem næst búa, en hin eru þar í heimavist. Þótt nokkrar deil- ur væru um það í sveitinni, hvort byggja ætti skólann þarna eða annars-

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.