Heimili og skóli - 01.12.1947, Page 19

Heimili og skóli - 01.12.1947, Page 19
HEIMILI OG SKÖLI 131 Vikivakaflokkur barnaslúkunnar Eyrarrósar i Siglufirði. myndi varla þora inn til þeirra, ekki í hugskot þeirra sjálfra og ekki í skól- ann, því að þau hefðu vígt sig guði strax að morgni, með því að ákalla hann og biðja hann um hjálp. Og svo væri gaman að vita til þess, að kl. 9 að morgni væri þetta vers alls staðar sung- ið í hverjum skóla, og þau væru þvi þátttakendur í stórum kór, þótt þau sæju hann ekki. Þetta hefur örvað þau, og þaú hafa sýnt mikinn dugnað við að læra lagið, og þar sem kennarinn getur ekki sungið, ætluðu þau sjálf að velja sér forsöngvara úr sínum hópi. — Það væri ánægjulegt, ef hægt væri að gera eitthvað slíkt að fastri, ófrávíkjanlegri reglu. Föst regla og fögur regla er upp- eldislegur ávinningur. Og ekkert barn myndi nokkurn tíma gleyma morgun- versi, sem það syngi á hverjum morgni í rnargar vikur. — Gerum þetta að fastri reglu í vetur. Sn. S. Athyglisverð bók Fósturdóttir úlfanna eftir pró- fessor Amold Gesell. Steingrím- ur Arason íslenzkaði. — Bóka- verzlun ísafoldar gaf út. Heimili og skóla hefur borizt of- annefnd bók, sem greinir frá hinum einkennilegustu atburðum, er gerst hafa á síðari tímum. Bókin hefst á ágætum formála þýð-

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.