Heimili og skóli - 01.12.1961, Síða 5
Heimili og skóli
TÍMARIT UM UPPELDISMÁL
20. árg. Nóvember—Desember 1961 6. hefti
Hátíð heimilanna
Jólin eru mesta hátið kirkjunnar og
hafa verið um aldir. Þau birtast hér á
Norðurlöndum eins og lýsandi stjarna
i svartasta skammdeginu, en þau eru
meira en stórhátíð kirkjunnar, þau
eru kannski umfram allt hátið heim-
ilanna. Svo tilkomumikið sem það er
að heyra kirkjuklukkurnar kalla til
helgra tíða, heyra sálmasönginn og or-
geltónana fylla guðs hús og hlýða á
jólaguðsþjallið frá altari og þrédik-
unarstóli, svo er hitt ekki síður dásam-
legt að sjá Ijómandi augu barnanna
okkar full af eftirvæntingu og yndis-
legu sakleysi. Frá þeim held ég að stafi
mestur jólafögnuður og jólaljómi, sem.
stundum getur jafnvel orðið himnesk-
ur. Getur nokkur maður verið svo
hjartalaus að verða til þess að skyggja
viljandi á þann fögnuð?
Jól kirkjunnar eru hátíðleg og til-
komumikil. Þau fylla hugina i senn
alvöru og fögnuði, ef við skiljum þau
rétt, en jól heimilanna búa yfir djúp-
um fögnuði og friði, sem enginn fær
lýst, aðeins lifað og notið. Við megum
aldrei gleyma uppeldisgildi jólanna.
Aldrei gera þau að innantómum veizl-
um, sem ekki snerta hjörtun, því að
jólin eru umfram allt hátíð hjartn-
anna, göfugra tilfinninga, kœrleiks-
rikra hugsana, sem verma heiminn og
gera hann bjartari og hlýrri. Ef nokk-
urn tíma eru á ferð góðar og himnesk-
ar verur, þá er það á jólunum. Sumum
er gefin sú gáfa að skynja þetta, og
margir þykjast finna til nærveru
þcirra. Hvers vegna ekki? Þar sem góð-
ar og hlýjar hugsanir eru á ferð, þar
fara líka góðar verur, ósýnilegir vinir
okkar.
— Hvert fátækt hreysi höll nú er,
því guð er sjálfur gestur hér. Látum
jólahald vort fara fram með þeim
hætti, að hann þurfi ekki að standa
fyrir utan dyrnar.
GLEÐILEG JÓL!