Heimili og skóli - 01.12.1961, Qupperneq 18
134
HEIMILI OG SKÓLI
Amarminning
Nokkur orð um skáldspekingirui R. Tagore
I.
Á þessu ári er aldarafmæli indverska
skáldspekingsins Rabindranath
Tagore. Hann var fæddur í Calcutta í
Indlandi 6. maí 1861, en lézt 7. ágúst
1941 rúmlega áttræður að aldri. í til-
efni af þessu afmæli hefur komið út
bókin „Skáld ástarinnar" og hefur séra
Sveinn Víkingur tekið hana saman af
sinni alkunnu smekkvísi.
En hvað snertir þetta okkur hér úti
á íslandi? Eigum við nokkuð hér eftir
þennan skáldsnilling?
R. Tagore var heimsfrægur sem
skáld og hlaut bókmenntaverðlaun
Nóbels árið 1913. Á íslenzku eru, auk
hinnar nýju bókar, aðeins tvö ljóða-
kver, Farfuglar og Ljóðfómir í þýð-
ingu Magnúsar Á. Ámasonar listmál-
ara. Þetta eru litlar bækur en innihald-
ið sígilt. Þær voru gefnar út aðeins í
fáum eintökum, en mér finnst þær
vera meðal fegurstu perlanna í bóka-
skápnum mínum.
R. Tagore hefur ritað „Endurminn-
ingar“ sínar og er það allstór bók. Af
henni má ráða hvemig hann leit á ævi
sína og lífsstarf. Hann var kominn af
Skáldspekingurinn R. Tagore.
lífsins, sem gefur því gildi. En lotn-
ingin er ekki hin sterka hlið 20. ald-
arinnar. Manni 20. aldarinnar lætur
það ekki að krjúpa á kné í auðmýkt,
ekki einu sinni fyrir hinum vísinda-
legu kraftaverkum sínum, hvað þá
fyrir hinu mikla lífsundri. En þegar
lotningin er þurrkuð út úr lífinu, eig-
um við efnisheiminn einan til að dá,
og þegar tæknin er komin langt fram
úr hinum andlega þroska mannkyns-
ins, erum við sannarlega í hættu, og
öll okkar menning.
Eina leiðin út úr þessum ógöngum,
sem efnishyggjan og tæknin hafa leitt
okkur í, er að byrja á ný að rækta til-
finningalífið og trúarlífið. Það er ná-
lega hin eina von mannkynsins nú.
Hannes J. Magnússon.