Húnvetningur - 01.06.1944, Blaðsíða 3
HÚN VETNIN GUR
3
er, eftir því sem hægt er, og það sem
fyrst, en hin leiðin er, að hætta við alla
afgreiðslu skipa hér og strika Blönduós
alveg út sem höfn eða lendingarstaðK en
beina flutningunum í gegn um Skaga-
strönd. Nú er vegurinn til Skagastrandar
talinn 23 km., en það mætti stytta hán'n
til mikilla muna með þvi að leggja hann
neðar en nú er. Þegar svo búið væri að
bæta höfnina þar, svo að hún væri skip-
geng að bryggju, sem hlýtur að verða
fljótlega, mundi uppskipun og keyrsla frá
Skagaströnd ekki verða mikið seinlegri
en hér, og sennilega ódýrari, og það sem
mest er um vert, þessi leið yrði í flestum
tilfellum alveg örugg. Og auk þess yrði það
til mikilla þæginda fyrir héraðið allt, að
fá góðan veg til Skagastrandar og dagleg-
ar ferðir, einkum ef þar risi upp síldar-
vinnslustöð, eins og ekki er ólíklegt að
verði.
En þetta kemst nú ekki í framkvæmd
fyrst um sinn, og er því ekki um annað að
tala en að reyna að gera svo við bryggj-
una hér, að, hún verði nothæf.
Á fundi, sem stjórn kaupfélagsins hélt
nú stuttu eftir áramótin, voru þessi mál
tekin til athugunar, og 'var formanni
bryggjunefndar boðið á fundinn. Þar varð
það að ráði, að K. H. bauðst til þess að
lána bryggjunni fé til þess, ef hægt væri,
að hrinda þessum málum eitthvað áleiðis,
og það sem fyrst. Það kann að vísu að
orka tvímælis, hvort rétt sé að K. H., sem
er einstakra manna eign, og rekið með
hagsmuni þeirra fyrir augum, eigi að lána
fé til fyrirtækis eins og bryggjunnar, sem
er að nokkru leyti opinbert fyrirtæki, en'
stjórn kaupfélagsins leit svo á, að hag
félagsins og héraðsins yfirleitt væri bezt
borgið með því að hlaupa þarna undir
bagga. Sjálf á bryggjan ekki neitt til
neins, en skuldar yfir 50 þús. krónur, og
sést bezt á þessu hvert olnbogabarn hún
hefir verið og vanmetin frá fyrstu tíð.
Stjórn K. H. ásamt bryggjunefnd, fól
svo Hafsteini Péturssyni að annast fram-
kvæmdir þessa máls. Er hahn nú kominn
til Reykjavíkur, og eru miklar vonir við
það tengdar, að erindi hans megi verða
sem bezt.
Það nær ekki tilgangi sínum að leggja
í það mikið fé og erfiði að teygja vegina
heim á sem flest býli í sýslunni, ef einn
hlekkurinn í þeirri keðju er svo veikur,
að hann kemur ekki að tilætluðum notum,
og getur bilað þegar verst gegnir, og við
verðum að gera okkur það vel ljóst, Hún-
vetningar, að einmitt þetta atriði, að halda
aðalflutningaleiðinni inn í sýsluna 1 sæmi-
legu standi, er eitt af mestu hagsmuna-
málum héraðsins, og þó við þykjum ófé-
lagslyndir og sundurleitir í skoðunum, ætt-
um við allir að geta sameinazt um þetta
mál, og hjálpazt að því að koma því í
framkvæmd. J. S. B.
Ullarþvottur og kembivélar.
Kaupfélagið lagði til hliðar kr. 10.000,00
á síðastliðny ári í kembivélasjóð. Nú hefir
stjórn K. H. farið þess á leit við dr. Hall-
dór Pálsson, sem fer utan á vegum ríkis-
stjórnarinnar, að hann kynni sér þessi
mál með sérstöku tilliti til þess, hvernig
ullarvinnslumálin verði bezt leyst hjá okk-
ur og eins og hans var von og vísa, hefir
hann lofað því. Einnig mun hann í sam-
ráði við S. í. S. reyna að fá sölutilboð um
vélar og áhöld við okkar hæfi.
Það hefir komði til tals að gera nú
þegar ráðstafanir til að tryggja fjármagn
í þessu skyni, t. d. með því að safna hluta-
fé til fyrirtækisins, sem handbært væri,
þegar rétt virtist að koma þessu nauð-
synjamáli í framkvæmd og gæti þá komið
til mála að K. H. ávaxtaði slíkt fé með
sparisjóðs vöxtum, þangað til, að til þess
þarf að taka.