Húnvetningur - 01.06.1944, Side 4
4
HÚN VETNIN GUR
Eftir aðalfund K. H. 1943
Það mun þykja ástæða til, að greina
frá ýmsu, sem á daga Kaupfélags Hún-
vetninga hefir drifið eftir aðalfundinn, en
fundargerð þess fundar hefir verið fjöl-
rituð og send heim i deildirnar til kynn-
ingar.
Aukafulltrúafundur var boðaður og
haldinn fyrir sláttinn til að ráða kaupfé-
lagsstjóra fyrir félagið þar sem samkomu-
lag hafði orðið um að fyrrv. kaupfél.stj.
P. Theódórs léti af störfum. Fundur-
inn réð Jón S. Baldurs sem kaupfélags-
stjóra og fól stjórninni að gera við hann
starfssamning. Starfið hafði ekki verið
auglýst til umsóknar og þar sem nokkurt
umtal hefir orðið um þá málsmeðferð,
fylgir hér:
Skýrsla
formanns Kaupfélags Húnvetninga
á aukafulltrúafundi 4. júlí 1943.
„Á síðasta aðalfundi kaupfélagsins var
kaupfélagsstjóranum, hr. Pétri Theódórs,
sagt upp frá næstu áramótum að telja.
Engan ályktanir og ég held engar umræð-
ur fóru fram úm það á fundinum, hvernig
ráðning manns í hans stað skyldi hagaö.
Stjórnin hafði því engar leiðbeiningar eða
fyrirsagnir frá aðalfundi um, hvernig vali
framkvæmdarstjórnans skyldi fyrir kom-
ið, en það virtist augljós vanræksla af
stjórnarinnar hendi, að gera ekki þegar
ráöstafanir til þess að framkvæmdarstjóri
gæti orðið löglega ráðinn og það sem
fyrst.
Þar sem allar líkur voru til, að þeir
fulltrúar, serú sátu síðasta aðalfund, réðu
vali framkvæmdarstjórans, þá hlaut það
að vera skylda stjórnarinnar að gera þær
ráðstafanir í þessu máli, sem talizt gætu
í beztu samræmi við vilja fulltrúanna, því
ekki var viðeigandi að gera ráð fyrir, að
þeir breyttu um skoðun.
Á aðalfundinum skiptust menn þannig
í sveitir út af vali framkvæmdarstjóra að
13 fulltrúar voru fylgjandi því, að núver-
andi framkvæmdarstjóri okkar sæti áfram,
en 2 fulltrúar sátu hjá við atkvæðagreiðsl-
ur, aftur á móti voru 20 fulltrúar með því
að segja framkvæmdastjóranum upp starfi.
Þar sem við Páll Geirmundsson stjórnar-
nefndarmaður vorum í hópi þessara 20
fulltrúa, var okkur kunnur vilji þeirra
allra og var hann sá, að Jón S. Baldurs
fyrverandi starfsmaður kaupfélagsins yrði
ráðinn framkvæmdastjóri félagsins. Allir
þessir menn fóru þess skriflega á leit við
Jón S. Baldurs að hann tæki að sér fram-
kvæmdastjórastarfið að undanskildum sr.
Gunnari Árnasyni ,sem þó hefir lýst því
yfir að hann vilji Jón S. Baldurs sem fram-
kvæmdastjóra. Það lá því fyrir, að þeir
fulltrúar, sem stóðu að uppsögn fram-
kvæmdastjórans P. Theódórs, voru ákveðn-
ir í því, að ráða Jón S. Baldurs sem
framkvæmdastjóra kaupfélagsins. Hins
vegar var vitað, að þeir 13 fulltrúar, sem
voru á móti uppsögninni, höfðu ekki í
huga, að fá annan framkvæmdastjóra,
heldur vildu eindregið, að núverandi fram-
kvæmdastjóri starfaði áfram. Afstöðu
þeirra tveggja, sem ekki greiddu atkvæði
vitum við ekki, þar sem þeir hafa ekki gefið
skýringu á afstöðu sinni til þessa máls.
Þetta mál liggur þá þannig fyrir, að 33
fulltrúar af 35 voru búnir að binda fylgi sitt
við ákveöinn mann sem framkvæmda-
stjóra félagsins, virtist það því algerlega
óviðeigandi að auglýsa stöðuna til um-
sóknar, ef Jón S. Baldurs fulltrúi gæfi kost
á sér sem framkvæmdastjóra og sækti um
stöðuna.