Húnvetningur - 01.06.1944, Blaðsíða 6
6
HÚNVETNINGUR
Utibúsmálið
í fyrra vetur var sett á stofn útibú frá
K. H. á Blönduósi innan Blöndu og var
Halldór Albertsson ráðinn til að veita því
forstöðu, og leigt af honum hús til verzl-
unarrekstursins. Ráðningatíminn var að-
eins 1 ár eða árið 1943.
Mun fyrrv. stjórn hafa byggt þessa
ráðstöfun sína á ítrekuðum kröfum aðal-
funda um að slíkri stofnun væri komið
upp, en um leið virðist hún hafa ætlazt
til að reynslan skæri úr um það, hvort
haldið yrði áfram með útibúið, þar sem
forstjórinn var aðeins ráðinn til eins árs.
Þetta virtist hinni nýju stjórn eðlileg af-
staða og samþykkti því með samhljóða
atkvæðum á fyrsta fundi sínum að segja
útibússtjóranum upp starfinu frá ára-
mótum, þó samningslega hefði það má-
ske ekki þurft. Var þetta gert til þess að
hafa algerlega óbundnar hendur, hvort
heldur stjórninni litist að hætta verzlun-
arrekstrinum eða breyta fyrirkomulaginu.
Það virðist liggja ljóst fyrir, að útibús-
reksturihn mundi ekki bera sig, ef félagið
— útibúið — næði ekki nokkru af þeirri
umsetningu, sem aðrar verzlanir á
Blönduósi hafa haft, því að öðrum kosti
á vörum væri felld niður og ennfremur
prósentur hans af vöruumsetningu.
Auk þessa fær kaupfélagið til afnota sem
svarar 3 herbergjum sem fyrverandi kaup-
félagsstjóri hafði til umráða og verður það
íbúð handa einum starfsmanni, sem átti
samningsbundna kröfu um íbúð. Eru það
því allmikil þægindi fyrir K. H. eins og nú
horfir í húsnæðismálum hjá félaginu.
Laun — peningagreiðsla — eru ekki
hærri en þau voru til fyrirrennarans, og
hlunnindi þau sömu að öðru en hér hefir
verið talið. H. P.
var útibúsreksturinn viðbótarkostnaður
við núverandi vöruumsetningu félagsins
og það sem vanst við slíkt var aðeins að
gera félagsmönnum — aðallega Blöndu-
ósingum innan Blöndu — þægilegra að ná
í vörur frá K. H. Útibú, sem reist var á
þeim grundvelli, gat vart átt rétt á sér,
því þá gátu meðal annars komið fram með
líkum rökum kröfur frá sveitunum að fá
útsölur hjá sér.
Við þetta bætist það, að síðastliðið ár
hefir verið mjög tregt um að fá vörur til
að verzla með fram yfir þann kvóta, sem
verzlanir hafa haft áður og ekki er betra
útlitið hvað það snertir, enda reynd-
ist það svo, að margar vörutegundir,
sem bezt er að verzla með, vantaði alveg
tímunum saman, bæði í K. H. og útibú-
inu á síðastliðnu ári. Jólavörur fengust
ekki nægar í aðalverzlunina, hvað þá í úti-
búið. Þegar stjórnin íhugaði þetta, þá varð
henni ljóst, að frá fjárhagslegu sjónarmiði
væri ekki rétt að halda áfram rekstri úti-
búsins undir sömu kringumstæðum og sið-
astliðið ár.
En með því að útibúsrekstur. var hafinn
og aðalfundir höfðu verið meðmæltir úti-
búsrekstrinum og ekki sízt vegna þess, að
Blönduósingar virtust leggja kapp á að
útibúið starfaði áfram, þá tók stjórnin
það alvarlega til athugunar, hvort ekki
væri hægt að gera útibúsreksturinn álit-
legri innan Blöndu en hann virtist hafa
verið síðastliðið ár og samþykkti á fundi
6. des. með öllum atkvæðum að fela for-
manni að leita fyrir sér um betri aðstöðu
til útibúsrekstursins.
Eins og bent er á fyr var það þetta sem
vinna bar að:
1. Fá betri aðstöðu gagnvart ferða-
mannaverzlun.