Sumardagurinn fyrsti - 01.06.1978, Blaðsíða 8
SKÝRSLA INNRITUNARDEILDAR FYRIR ÁRIÐ 1977«
Unnin^af Laru Gunnarsdóttur, Kristínu ölafsdóttur og Þórunni
Friðriksdóttur.
Starfsemi innritunardeildar var með líku sniði a'rið 1977 og
undangengin ár. Fjöldi umsókna um vist á dagvistunarheimilum var
svipaður og árið 1976, en eftirfarandi tafla sýnir fjölda umsókna
frá því að innritunardeild tók til starfa.
Xrtal. Dagheimilisumsóknir. Leikskólaumsóknir.
1971 340
1972 459
1973 428
1974 505 882
1975 657 1201
1976 574 1214
1977 489 1265
Her á eftir fara svo ýmsar aðrar upplýsingar um starfsemina á
síðastliðnu ári.
SKÓLADAGHEIMILI.
Á skóladagheimilum þeim, sem innritunardeildin hefur til um-
ráða, er nú rými fyrir 88 börn. Fækkað var um 4 börn á skóla-
dagheimili í Heiðargerði á árinu vegna þrengsla.
Skóladagheimili í Breiðholti tók ekki til starfa á árinu, eins
og lofað hafði verið. Leyst var úr erfiðleikum þeirra sem treyst
höfðu á stofnun skóladagheimilis í Breiðholti í samvinnu við
starfsmenn Felagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar. Reyndist unnt að
fá daggæslu á einkaheimilum fyrir öll börn er þess óskuðu.
Nokkuð hefur verið farið inn á þá braut, að vista 6 ára börn
á skóladagheimilum ef tými losnuðu um miðjan vetur og hefur það
gefist vel.
Eingöngu börn einstæðra foreldra dvelja á skóladagheimilum.
Borið hefur á að einstæðir foreldrar, sem rétt eiga á skóladag-
heimilisvist fyrir börn sín, sæki ekki um. Skýring kann að vera
sú að foreldrar telji það vonlítið sökum skorts á rýmum. Þess
sjónarmiðs verður einnig vart að foreldrum þyki full kostnaðarsamt
að hafa barn á skóladagheimili, þegar að barn stækkar og skóladagur
lengist. Sótt var um vist fyrir 6l barn á skóladagheimilum árið 1977-
Alls voru 48 börn vistuð á skóladagheimilum árið 1977* þai" af
46 í fyrsta sinn, 2 voru flutt á milli heimila, 3 börn byrjuðu og
hættu á árinu.
8