Ferðir


Ferðir - 01.04.1979, Page 17

Ferðir - 01.04.1979, Page 17
F E R Ð I R 17 6. mynd. Litgrýtisskrida (líparít) í tlcimari-Lambárdal. Blágráir og rauðbrúnir steinar, margir áberandi rondótlir (Ljósm. höf). eða diabas (gróft afbrigði af basalti), sem veðrast mun hægar og myndar því iðulega garða og dranga í litgrýtishlíðunum, sem skera sig vel af þeim vegna hins dökka litar. Slíkir gangar eru t.d. mjög áberandi á Súlnahryggnum (Krummarnir) og framan í Tröllafjalli (Tröllin). Yfirgnæfandi meirihluti lit- grýtissyrpunnar við Glerárdal er úr slíku lagskiptu móbergi. Litgrýtisþursi (þursaberg) samsettur úr grjótmolum af ýms- um stærðum, ásamt fínna milliefni, er allvíða að finna í lit- grýtissyrpunni, einkum á svæðinu við Fremri-Lambárdal. Stundum jaðrar þetta efni við það sem kallað er tíglaberg eða flikruberg (Ignimbrit), en það er talið hafa myndast úr ógur- legum eldskýjum (nuee ardente), sem gubbast hafi upp úr eldfjöllum og flutt með sér mikið af hálfbráðnu bergefni, sem aftur rann saman þegar það settist á jörðina. Er það algengt á Austfjörðum. (Eitt slíkt eldský skall yfir borgina St.Pierre á eyjunni Martinique í Vestur-Indíum árið 1902 og gereyddi henni á fáeinum sekúndum).

x

Ferðir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.