Ferðir


Ferðir - 01.04.1979, Blaðsíða 24

Ferðir - 01.04.1979, Blaðsíða 24
24 FE RÐIR Með nokkrum hvíldum komumst við innarlega á Finna- staðadal, þar sem leiðin var farin að vera allmjög á fótinn. Við vorum orðnir sárir í öxlunum undan skíðunum og hugðum á breytingar, enda var nú snjórinn orðinn meiri. Veittist okkur mun léttara að þramma á skíðunum og miðaði vel áfram, þrátt fyrir aukinn bratta. Innst í dalnum þurftum við að klífa allháa og bratta brekku, og vorum þá staddir í skarðinu milli Kerlingar að austan og Glerárdalshnjúks að vestan. Taldist okkur svo til, að við værum staddir í liðlega 1000 m hæð. Degi var allmjög tekið að halla, og þar að auki var farið að snjóa í ákafa, svo að við drifum okkur strax í að útbúa náttstaðinn. Tjald höfðum við meðferðis, en þótti ekki sem árennilegast að hýrast í þunnu tjaldi í hríð og kulda í kílómeters hæð yfir sjó. A einum stað fundum við þarna allháan og brattan snjóvegg og tókum til við að grafa okkur þar snjóhús. Enga höfðum við skófluna meðferðis, en í hennar stað notuðum við skíðin, hnífa og potta. Tókst okkur með þessum verkfærum að grafa okkur sæmilegasta snjóhelli. Síðan hlóðum við skjólveggi allt í kringum opið, lögðum skiöin á þá sem sperrur, breiddum úr tjaldinu ofan á og hlóðum loks snjó á það. Á gólfið í húsi þessu breiddum við segldúk sæmilegan. Fljótlega vorum við seztir að matargerð og snæðingi og hitnaði okkur fljótt og vel. Dr. Trausti dró þá upp spil og dr. Trausti Einarsson vid náttstaðinn.

x

Ferðir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.