Reykjanes - 15.01.1946, Síða 2
2
REYKJANES
umferðargötu kauptúnsins,
Hafnargötuna, og tekið fyrir
svo langt stykki á ári, sem
gjaldþol hreppsins leyfir.
3. Að steyptur verði garður sjáv-
• armegin við Hafnargötuna neð-
antil (milli verzlunarhúss E. Ó.
Ásbexg og Edinborgar), til að
forðast landbrot.
4. Að útvegaðar vexði hagkvæm-
ar vélar til þessara fram-
kvæmda.
SJÁVARUTVEGSMÁL.
Sjálfstæðismenn telja það höf-
uðverkefni sitt að stuðla að auk-
inni útgerð í kauptúninu og hag-
nýtingu sjávarafurða.
Sjálfstæðismönnum er það ljóst,
að svo bezt er íbúum hreppsins
tryggð atvinna í framtíðinni, að
eðlileg þróun sjávarútvegsins eigi
sér stað.
Sjálfstæðisflokkuiinn vill því
hvetja unga menn til að taka virk-
an þátt í fiamleiðslunni, og telur
að stuðla eigi að og greiða fyrir
útgerð einstaklinga og félaga á all-
an hátt.
BYGGING BARNA- OG
UNGLINGASKÓLA.
Barnaskóli hreppsins var bvggð-
ur árið 1911. Þá var íbúatala
Keflavíkur urn fimm hundruð
talsins. Á þeirn tírna var skólinn
myndarleg bygging og stærð hans
töluvert meiri en þörf þeirra tíma
krafðist. Ennfremur fullnægði
hann þeim kröfum, sem ]xá voru
gei'ðar til skólabygginga.
Nú er hinsvegar svo komið, að
skólinn fullnægir alls ekki þörf-
inni, sem skapazt hefur af hinni
miklu fólksfjölgun, og heldur ekki
þeirn kröfiim, sem gerðar eru til
skólabygginga nútímans.
Sjálfstæðisflokkurinn mun því
af alefli beita sér fyrir,
Að byggður verði hér myndar-
legur skóli fyrir barna- og ung-
lingakennslu, og að tekið verði
þá tillit til hinnar miklu og
vaxandi fólksfjölgunar, hvað
stærð hans snertir.
HAFNARMÁL.
Margt hefur vei'ið rætt, ritað og
deilt um hafnarmál og aðbúnað
bátaflotans hér í Keflavík á und-
anförnum árum. Um eilt verður
ekki deilt, en það er nauðsynin á
áframhaldi framkvæmdar þeirra
verka, sem hafin eru.
Eins og kunnugt er þá var haf-
skipahryggjan byggð árið 1932 og
var í eign einstaklinga þar til seint
á árinu 1941, að Keflavíkurhrepp-
ur keypti mannvirkin. Var þá
hafnargarðurinn um 60 metra
langur og talinn lítt nothæfur eins
og hann var. Kom þá að sjálf-
sögðu í hlut hreppsins að hefjast
handa urn viðhald og framhald
garðsins.
Ráðandi mönnum var þegar
ljóst, að ef atvinnuvegurinn, sem
lífsafkoma hyggðarlagsins byggist
á, átti ekki að bíða stórhnekki,
og átti að geta fylgt kröfum tím-
ans, þá varð að beita sér fyrir
aukningu hafnarmannvirkjanna.
Hófst því hreppsnefnd og hafnar-
nefnd handa um útvegun fjár til
þess að unt væri að lengja og bæta
hafnarvirkin og leiddi það til þess
að á árinu 1942 er hafinn undir-
búningur að framlengingu gamla
gai'ðsins. Á árinu 1943—1944 er
garðurinn lengdur um 40 mtr. og
um leið breikkaður úr 8 í 10 mtr.
Árið 1945 er haldið áfram og bætt
við 20 mtr. og biiið að tryggja
25 mtr. lengingu á árainu 1946.
Er því lengd garðsins nú 120 mtr.,
en ætti að verða að hausti kom-
andi urn 145 mtr. Aidc þessa hefir
síðan hreppurinn tók við, verið
gerð n}r og góð bátabryggja innan
garðsins, lengd hennar eru 37 mtr.
þá hefur og bátabryggjan sem
fyrir var verið lengd til stórra bóta
En er ótalið að gamla hafskipa-
brj'ggjan hefur verið endurbætt
og ti’eyst svo, að hún er nú í
mun betra ástandi en hún var
þegar kaupin gerðust.
Af þessu vérður séð, að mikið
hefur áunnizt, en betur má ef
duga skal. Er það fastur ásetning-
ur sjálfstæðismanna að beita sér
fyrir áframhaldandi auknum og
bættum mannvirkjum, þvi þeim
er það manna ljósast að bætt af-
korna og bætt lendingarskilyrði
fyrir fiskiflotann ])ýðir bætta af-
komu Keflavíkur og aukna at-
vinnu til alh’a, hvort sem þeir
starfa í landi^ða á sjó.
Leiðin til þess að tryggja far-
sælt áframhald þessara mála er
fyrst og fremst sú, að notfæra sér
þá reynsln og þekkingu, sem þeg-
ar er fengin, en hún er að láta
þá menn, sem sýnt hafa dugnað
framsýni og vilja i þessu velferð-
armáli, halda áfram að starfa að
framgangi þess ,byggðarlaginu til
hags og heilla. Verður það bezt
gert undir forustu sjálfstæðis-
manna.
Framgangur hafnarmálanna er
bezt tryggður nxeð kosningu sjálf-
stæðismanna í hreppsnefnd. Minn-
ist þess 27. janúar.
Eftir því, sem Keflavík stækkar,
færist að sjálfsögðu meii’a bæjar
líf yfir kauptúnið. Ekkert er þá
sjálfsagðara, en að hafa góðar
gætur á, að stxiðla að sem beztxi
xxppeldi yngstu kynslóðarinnar,
barnanna. Innan skamms erxi það
börnin, seixx taka við af fxdlorðna
fólkinxx. Það er því mikils vii’ði
að xippeldi bamanna verði senx
bezt, að sem flestir af xinglinguix-
unx veri vel menntaðir og þrosk-
aðir menn.
Rcynsla annara bæja og kaup-
tiina, hefxir sýnt, að barnaheimili
og leikvellir 'hafa hin beztu á-
hrif á xxppeldi barnanna. Sjálf-
stæðismenn nxunu því beita sér
fyrir því, að leikvöllur vexði starf-
ræktur hér, og athuga á allan
hátt möguleika á því, hvort ekki
exu tök á, að þeir foreldrar sem
þess óska, geti komið börnum sín-
um á sumardvalarheimili.
Sjómanna skáli.
Sjómanxxa- og verkamannaskáli
var um nokkurt skeið starfræktur
lxér í Keflavík, og naut ]xað al-
mennum vinsældum meðal verka-
nxanna og sjómanna, sem við var
að búast. Framsoknarmenn koniu
því til leiðar, á mjög svo lævísan
hátt að sjómanna skálinn var
lagður niðxir.
Sjálfstæðismenn munu því beita
sér fyiir því, að íeistur verði við
höfnina sjónxannaskáli, til þæg-
inda fyrir veikamenn og sjómenn.
Undirstaða framfara
er góð fjármálastjórn.
Sjálfstæðismenn Ieggja áherzlu
á, að hagsmunum hreppsins sé
stjórnað af fyllstu hagsýni og
gætni.
Sjálfstæðisflokkurinn mun því
leggja áherzlu á, að gætt sé hag-