Reykjanes - 15.01.1946, Page 5
REYKJANES
5
Ólafur Thors, þingmaður
Gullbringu- og Kjósarsýslu
í 20 ár.
Laugardaginn 19. þ. m. voru
um 60 manns samankomnir í ráð-
herrabústaðnum við Tjarnargötu,
hjá Ólafi Thors, til þess að árna
honum heilla í tilefni 20 ára þing-
mennsku lians í Gullbringu- og
Kjósarsýslu. Voru þarna mættir
fulltrúar úr flestum eða öllum
hreppum kjördæmisins. Það vildi
svo til, að Ólafur átti afmæli þenn-
an sama dag, svo að tvöföld á-
stæða var til þess, að minnast
dagsins. Ólafur Thors og frú hans
veittu að mikilli rausn og margar
ræður voru fluttar.
Bann.
Frá og með 18. þ. m. hefur
hreppsnefndin bannað sölu á óger-
ilsneyddri mjólk í Keflavík. Þetta
er áreiðanlega mjög tímabær ráð-
stöfun. Að áliti Sigurðar Péturs-
sonar gerlafræðings og próf. Níels-
ar Dungal er mjólk sú, sem að
undanförnu hefur verið til sölu
hjá kaupfélaginu, ónothæf til
neyzlu, og engin trygging fyrir
því, að hún sé ekki beinlínis hættu-
leg mönnum — sérstaklega börn-
um. Nú hefur Matardeildin tekið
upp sölu mjólkur og er hún geril-
sneydd — flutt frá Reykjavik. Er
þetta mikið hagræði fyrir fólk,
sem býr innst í kauptúninu, auk
þess sem þessi nýja útsala koll-
varpar einokunarbrölti Björns
Péturssonar, en eins og mönnum
er í fersku minni, sölsaði hann
alla mjólkursölu hér í Keflavík
undir Kron, á sínum tíma, til hinn-
ar mestu óánægju fyrir íbúana hér
í Keflavík. Mun það eflaust mæl-
ast vel fyrir, að þessi fyrrverandi
Kron-stjóri fái ekki lengur að nota
mjólkina sem agn — til þcss að
skara eld að köku síns fyrirtækis.
„Alþýðuvinirnir“
hér í Keflavík lokuðu
Verkamannaskýlinu við höfnina,
vegna eigin hagsmuna. Þvi miður
er ekki hægt að skýra nánar frá
þessu „þokkabragði“, en það mun
verða upplýst almenningi áður en
langt um líður. En verkamenn
munu svara fyrir sig við kosning-
arnar á sunnudaginn!
Daníval Danívalsson
hefur að undanförnu haldið uppi
harðvítugum áróðri gegn sjálf-
stæðismönnum. Hefur áróður þessi
aðallega átt sér stað í búðarholu
hans, ennfremur á götum og í
skúmaskotum. En Keflvikingar
ljá ekki þessum Framsóknarkurfi
eyra — þeir eru farnir að kann-
ast við hann!
Hreppsnefnd Keflavíkurhrepps
hefur nú meðtekið gjafa-afsals-
bréf fyrir sundlauginni, ásamt
peningasjóði að upphæð rúmar 10
þúsund krónur, sem varið skal til
viðhalds og eflingar sundlauginni.
1 bráðabirgðastjórn laugarinsar
tilnefndi hreppsnefndin þá Mar-
geir Jónsson og Ólaf A. Þorsteins-
son. Þriðja manninn útnefndi
stjórn U.M.F.K. og er það Arin-
björn Þorvarðarson sundkennari.
Málfundafélagið „Baldur“
hélt fund að félagsheimili sjálf-
stæðismanna föstudagskvöldið 18.
]). m. 14 nýir meðlimir gengu í
félagið. Létu menn óspart í ljós
ánægju sína yfir húsakynnunum
og þeim möguleikum til eflingar
félagslífsins, sem þau skapa. Mik-
ill áhugi var ríkjandi á fundinum
og hugðu menn gott til komandi
stunda i hinum nýju félagsheim-
kynnum. Ymsar breytingar og lag-
færingar eiga eftir að fara fram á
húsinu, til þess að það megi sem
bezt fullnægja tilgangi þem, sem
því er ætlaður.
M. b. Vísir
Vélbátur Otgerðarfélags Kefla-
víkur h. f., er væntanlegur hingað
næstu daga. Svo sem Keflvíking-
um er kunnugt, var útgerðarfélag-
ið stofnað í apríl s. 1., með al-
mennri þátttöku Keflvíkinga. —
Samið var um smíði bátsins hjá
Marseliusi Bernhardsyni Isafirði,
og hófst smíði hans í júlí mánuði
s. 1.
Báturinn sem er 54 brutto smál.
að stærð, er smíðaður eftir sömu
teikningum og M. b. Beykjaröst,
og hefur verið vandað til hans að
öllum útbúnaði. Skipstjóri á hon-
um verður Árni Þorsteinsson, en
vélstjóri Sigurður B. Helgason.
Þeir Keflvíkingar, sem lofað
hafa hlutafé, en hafa ennþá ekki
greitt það, eru hérmeð hvattir til
að standa við skuldbindingar sín-
ar, með því að greiða bið lofaða
hlutafé, sem fyrst.
Framkvæmdarstjóri Utgerðar-
lelags Keflavíkur h. f. er Albert
Bjarnason.
Kjóslð ekld Framsóknadlokkinn!
Hann er á móti nýsköpun atvinnuveganna og
öllum framförum.
Kjósið ekki Mþýðuflokldnn!
Hann hefur þegar fengið sinn dóm hjá þjóðinni,
sem snúið hefur við honum bakinu. Alþýðu-
flokkurinn á aðeins eftir að gefa upp andann
formlega — er dauða-dæmdur flokkur, sem ekki
er liklegur til að geta haft áhrif á gang þjóðmála.
Kjésið ekki kommúnista!
Ef þið viljið losna við hið „austræna lýðræði.“
Þetta er flokkurinh, sem heimtar allt af öðrum
— ekkert af sjálfum sér.
Kjósið Sjálístæðisílokkinn!
Eina þjóðlega stjórnmálaflokkinn í landinu, sem
hefur að kjörorði:
Stétt með stétt!
Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur allra
sannra íslendinga!