Reykjanes - 27.01.1950, Síða 2

Reykjanes - 27.01.1950, Síða 2
2 REYKJANES Loforðabókin II. útgáfa Það var ekki vanþörf á að fá end- urprentað hrafl úr „Loforðabókinni“, sem Alþýðuflokurinn gaf út við síð- ustu kosningar. Bókin er nú gefin út á rúmri síðu í Röðli og fer vel á því að fella ýmislegt niður, en furðu djarft er að birta sumt af þessum loforðum aftur. En nú hefur verið úr öllu dreg- ið og sviknu loforðin felld niður. Það voru flestir sammála um að kaupa togarann, og við engan hér er að sakast, þó rekstur hanns gangi bá- lega, það er ekki bæjarmál, það er þjóðfélagsmál, þegar svo er komið að okkar beztu atvinnutæki eru rekin með stórfelldu tapi. Ennþá er Alþýðuflokurin að burð- ast með fiskiðnaðinn. Hvers vegna hafa þeir ekkert gert á síðustu 4 ár- um til að koma á fót þessu fiskiðju- veri sínu? Ragnar og Jón Tomm hafa verið tvö síðustu árin í smá undirbún- ingskennslu í útgerðarmálum, báðir í stjórn Útgerðarfélags Keflavíkur, sem á m.b. Vísir. Ég veit ekki hvernig þar hefur gengið, því reikningar tveggja síðustu ára eru ókomnir, en það er vitað að Jón Tómasson neitaði að skrifa, sem stjórnarmeðlimur, á rekstrarlánsvíxillinn fyrir Vísir og olli það framkvæmdastjóranum nokkrum óþægindum, sem honum tókst þó að bjarga, svo báturinn komst á stað. Ætli það yrði ekki svipað með fisk- iðnaðinn, að Jón og hans nótar séu fúsari að skapa skuldir sem við eig- um að borga, en að lána nafn sitt þar, sem hægt er að nota það. Röðull þorir að minnast á skólamál- in, það málefni, sem Ragnar & Co. hafa farið verst með og svikið mest. í „Loforðsbókinni“ I. útgáfu, stendur að hefja skuli byggingu strax á vori komandi (1947), en tveim árum síðar er byggingin hafin fyrir harðfylgi skólanefndar og alla sína valdatíð hef- ur Ragnar svikið fjárframlög til skól- ans, svo sem honum hefur verið unt. — Bókasafn Keflavíkur verður ekki í barnaskólanum, vegna tillagna Ragn- ars & Co., heldur fyrir tilstilli Krist- ins Pétursson, formanns skólanefndar. Svo heldur runan áfram um hús- næðismálin, Elliheimili, Sjúkrahús og allt þetta ber að skilja sem sérmál Al- þýðuflokksins. Verkamannabústaðina hefur Ragnar svikið um greiðslur svo sem unt er, en Steindór séð um bygg- ingarnar, sem komnar eru, og eru svo dýrar að engum venjulegum verka- manni er fært að eignast þessar í- búðir. A Elliheimili er aðeins minnst um kosningar. Læknihéraðið fékk sjúkrahúsinu komið undir þak, og er það ekkert sérmál Ragnars að það taki til starfa sem fyrst. Vatnsveituna og holræsin fékk nú- verandi meirihluti hreppsnefndar und irbúin í hendur sér og verður það síð ar rakið, hvað axarsköft Ragnars & Co. hafa kostað bæjarfélagið, við fram kvæmd þessa verks. Svo heldur loforðunum áfram. Hafnargatan með pollunum, — bæjar- lóðirnar, sem Njarðvíkingar eiga enn, og Keflavík h. f., þá er sundlaugin, sem bænum var gefin og hann getur ekki losnað við og er af íþróttanefnd ríkisins og áhugamönnum úr öllum flokkum, rekinn til að gera í fullkom- ið stand. Útyfir tekur, þegar Alþýðuflokur- inn fer að þakka sér upphafsfram- kvæmdir á íþróttasvæðinu, þar hefur Ragnar og hans menn fremur verið dragbýtur á, en hitt, að þær fram- kvæmdir sem þar eru hafnar, eru ein- göngu verk íþróttamannanna sjálfra og annarra íþróttaunnenda, sem leggja þeim lið. Einn barnaleikvöll hefur bæjarstjórnin fengist lítilsháttar við, og dagheimili barna kom kvenfélagið á fót, að vísu með aðstoð bæjarins, en um þá framkvæmd voru allir sam- mála. Svo er kvikmyndareksturinn ennþá á dagskrá. Það er óheppilegt baráttu- mál fyrir kosningar — dæmin um gróð ann og reksturinn, eru deginum Ijós- ari. Vinnuvélar er nauðsynlegt að eign ast og er gott til þess að vita, að minni hlutinn verður ekki á móti verulegri aukningu þeirra. Sjómannaheimih er fallegt og nauðsynlegt mál. Einu sinni voru 10 þúsund krónur til þess á fjárhagsáætlun og síðan ekki söguna meir. — Nú er málið í góðum hönd- um, þar sem Stúkan Vík hefur tekið það að sér, og get ég fullvissað stúk- una um það, að hún mun njóta allrar beztu aðstoðar frá Sjálfstæðismönnum í því máli. Að lokum þetta: Alþýðuflokkurinn er furðu djarfur að þora að endur- prenta hrafl úr loforðabókinni — því bölvaðar staðreyndirnar eru svo erf- iðar. Skuldar oddvifinn ekki nóg! Keflavíkurbær á ógreitt til Almanna trygginganna krónur 300.000,00 og er það sem svarar til tveggja ára fram- lags bæjarins til þeirra trygginga, sem einu sinni voru áhugamál Alþýðu- flokksins. — Svo bregðast kross tré, sem önnur tré. Keflavíkurbær á ógreitt til Sjúki-a- samlags Keflavíkur krónur 85 þúsund — og er það sem nemur eins árs til- lagi til þeirrar þörfu stofnunar. Oðruvísi mér áður brá, þegar Ragn- ar var að reyna að innprenta fólki að það væru Sjálfstæðismenn, sem hefðu það að atvinnu að svíkja þessi þörfu fyrirtæki fólksins. Skrýtlur Á verkstæði nokkru hér í Keflavík bárust miðstöðvarkatlarnir frá Ólsen í tal. Staddur var þar inni einn af á- hangendum, eða sölumaður Ólsen- katlanna og var hann spurður að því, hvort satt væri það, sem staðið hefði í auglýsingaskrifum blaðanna, um þessa katla, að þeir spöruðu 100 kr. á mánuði í olíu. Sá sem katlana þekkti svaraði, að það væri alveg satt og rétt að þeir spöruðu 100 krónur á mánuði. Þá ætla ég að kaupa ketil strax, sagði einn viðstaddur, því þá fæ ég 4 krónur með katlinum á mánuði — minn ketill, sem er ekki Ólsen, eyðir nefnilega olíu fyrir 96 krónnr á mán- uði.

x

Reykjanes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjanes
https://timarit.is/publication/1890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.