Reykjanes - 27.01.1950, Blaðsíða 8
8
REYKJANES
Skopleg blaðamennska
Vinur minn Jón Tómasson, sendir
mér greinarkorn í síðasta Röðli og er
hann þar óvenju hittinn á margt, svo
sem nafn greinar sinnar sem á einkar
vel við, greinin er sem sé „Sorpleg
blaðamennska". í upphafi greinarinn-
ar segir Jón að ég hafi trúað honum
fyrh- því að hann kynni ekki að skrifa
um pólitík, og auðvitað hleypur Jón
með ,,trúnaðinn“ beint á prent. — Frá
mínu sjónarmiði var þetta enginn
trúnaður, miklu fremur það, sem allir
þurfa að vita, að Jóni er flest betur
lagið, en að skrifa eða tala um pólitík.
Hvað viðvíkur þessu gamla nasista-
röfli, þá snertir það mig ekki og er
öðrum fremu ren mér til leiðinda, en
sízt er andstæðingum mínum það of
gott að tönglast á því, meðan þeim
finnst bragð að. Það er mismunandi
mikið, sem þarf til að menn breyti
um skoðun, Jón Tómasson þurfti ekki
meira en að einu sinni var skrifuð
gamansöm smágrein um hugarflug
hans og frönsku fótaböðin, í Reykja-
nes, þá gerðist hann „Sósíaldemókrat“
og steinhætti að leggja Ólafi Thors
og Sjálfstæðisflokknum lið'sitt, eins og
hann gerði áður.
Er nú ástæða til að ætla að ég sé
svo mikið skapfastari en Jón, að meira
skuli en heila heimsstyrjöld, til að
breyta skoðunum mínum á betri veg?
Það er skiljanlegt að Jóni sárni dind-
ils-nefnið á Valtýr, því það er víst
nokkuð sárt að missa skottið, það vita
þeir sem haft hafa, svo og liitt, að
áróður Alþýðuflokksins um væntan-
lega samvinnu Sjálfstæðismanna og
Valtýrs, missir gildi sitt, þegar sýnt
er fram á að samvinna við Framsókn
kemur ekki til greina eftir kosningar
og með því að afgreiða Valtýr eins
og efni standa til, hér í blaðinu, þá
verður qvíslingaleikurinn, sem Jón
opinberar í grein sinni, um atkvæða-
lán, markleysa ein, og bætir það
hvorki málstað Jóns eða flokks hans,
þó hann segi Valtýr bera slúðrið út.
Svo eru að lokum nokkrar leiðbein-
ingar til Jóns Tómassonar, viðvíkjandi
pólitískri blaðamennsku, en kærkomn
ara væri mér að gefa þær persónulega,
heldur en á prenti. Það er vægast sagt
klaufalegt í pólitískri blaðamennsku
að skríða með vanrækslur sínar á bak
við „beinverki og hita", þennan kvilla
sem skólapiltar nota, þegar þá vantar
frí og ennþá klaufalegra er að byggja
svargrein við þungum ádeilum upp á
því, að andstæðingurinn sé með
„magakvilla“. Þetta er eins og krakk-
arnir nota, ef einn segir við annan —
þú ert með tannpínu, þá svarar hinn
— þú ert með magapínu!
Eg skil vel að Jóni sárnar það, að
ég skuli í grein minni, jafnframt þung
um ádeilum, vekja athygli á broslegu
hliðinni á málflutningi hans, og þess-
vegna verður hann reiður og skrifar
leiðinlega svargrein, sem vissulega
slær öll met í sorplegri blaðamennsku.
Keppnin er nú aðeins innbyrðis milli
greinarhöfunda „Röðuls“, um það
hver geti verið sóðalegri í ritmennsk-
unni.
Helgi S.
- Á víð og dreií -
Framhald af bls.. 7
inn varð að láta sér nægja röskar 200
þús. krónur til umráða á fjórum ár-
um.
Það er eitt og annað, sem ekki
„blasir við“ kjósendum bæjarins, og
meirihlutinn hefir ekki hátt um, af
skiljanlegum ástæðum, og það er að
tiltrú sem hreppurinn hafði í byrjun
kjörtímabilsins héfir farið mjög Jrverr-
andi, sem leiðir af söfnun lausaskulda
og alvarlegra vanskila.
Skuldasöfnunin við tryggingaranr
er þó einna mest (yfir þrjú hundruð
þúsund krónur).
Þann 29. þ. m. verða kjósendur að
velja á milli jafnaðarmanna og sjálf-
stæðismanna (Framsókn og Kommar
koma ekki til greina).
Þeir sem umbætur vilja á hag og
rekstri bæjarins kjósa Sjálfstæðismenn
en þeir sem vilja hafa sukkið áfram
kjósa jafnaðarmenn.
Svar til „verkalýðs-
foringjanna"
Þar sem ég hafði mjög stuttan tíma,
til umræðna á framboðsfundi, fyrir
væntanlegar bæjarstjórnarkosningar.
Sting ég niður penna. Fyrst er að
svara Magnúsi Þorvaldssyni í sam-
bandi við atkvæðagreiðslu mína í sam
bandi við kaupgjaldsmálin og í fram-
haldi við það vísa ég honum og þeim
öllum krötum til annarar greinar, í
þessu sama blaði, og átti sú grein að
vera birt áður, en kvað við kemur
stofnun fyrsta Verkalýðsfélags hér í
Keflavík, er ég tilbúinn til viðræðna
hvenær sem er á verkalýðsfundi eða
öðrum opinberum vettvangi. Vil ekki
bjóða M. Þ. blaðaskrif um það mál,
vegna þess að þar yrði hann að taka
að láni þar sem hann er þeim málum
ókunnur, sem öðrum málum, sem ég
hef haft afskipti af í þessu bygðalagi.
Oðrum fundarmönnum hefi ég ekki
áhuga fyrir að svara utan Gesti Aúð-
unss. og væri það helst, ef hann vildi
tala við mig um viðskiptamál, sem eru
óuppgerð okkar á milli.
18. marz 1946 fluttum við Sjálfstæð
ismenn tillögu um sjómanna- og verka
mannaskýli við höfnina, og meiri hluti
hreppsnefndar snéri því upp í sjó-
mannaheimili og tekið upp á f járhags-
áætlun sama ár, og veittar þar til kr.
10.000,00, og þar við situr, ekki veitt
til þess meir, en vonandi er sá sjóður
vel geymdur. Ég get bent til margs,
sem ég hefi tekið málstað vinnandi
manna, innan þeirra eigin málsvar, en
ætla mér það ekki til fradrags fyrjr
þessar kosningar, minnist þess seinna.
Að endingu þeir menn, sem hafa þá
hugsun, að gjöra fyrst kröfur til sjálfs
sín, og réttmætar til annara, munu
kjósa D-listann 29. janúar.
//. G. Eyjólfsson.
G. G.