Nesfréttir - 01.06.2023, Blaðsíða 2
Unnið er að því að reisa nýjar færanlegar einingar fyrir Leikskóla
Seltjarnarness á lóðinni Skólabraut 1. Er það gert í tengslum við
fyrirhugaða byggingu á nýjum leikskóla.
Nýja húsnæði leikskólanns á Skólabrautinni mun bera nafnið Skólabrekka
og kemur í stað Fögrubrekku sem nú stendur á lóðinni Suðurströnd 1 en
víkur þaðan vegna áforma Seltjarnarnesbæjar um byggingu á nýjum tveggja
hæða leikskóla "Undrabrekku" sem þegar hefur verið kynnt.
ÚT GEF ANDI: Borgarblöð ehf, Eiðistorgi 13-15, 172 Seltjarnarnes, Pósthólf 171. S: 511 1188 • 895 8298
RITSTJÓRI: Krist ján Jó hanns son • ÁBYRGÐAR MAÐUR: Krist ján Jó hanns son
BLAÐAMAÐUR: Þórður Ingimarsson UM BROT: Borgarblöð ehf.
NETFANG: borgarblod@simnet.is • HEIMASÍÐA: borgarblod.is
Nesfréttir koma út mánaðarlega og er dreift frítt í hvert hús á Seltjarnarnesi
2 Nesfrétt ir
www.borgarblod.is
Bókasafnið
Bókasafn Seltjarnarness á sér 138 ára sögu. Upphaf þess má
rekja til Lestrarfélags Seltjarnarness sem var stofnað 1885 af
Framfarafélagi Seltjarnarness. Óbein tengsl þess við upphaf skólahalds
á Nesinu eru augljós.
Áþessum tíma var fólk að vakna til vitundar um nauðsyn þess að
miðla upplýsingum og vitneskju til almennra borgara. Um það
vitan mörg lestarafélög sem stofnað var til undir lok 19. aldar.
Áþessum tíma var lestrarkunnátta að verða nokkuð almenn og
tilvalið að nota mátt hins ritaða máls til þess að ná til fólks. Bæði
í fróðleiks og skemmtunar.
Áþeirri bráðum einni og hálfri öld sem liðin er frá stofnun
lestrarfélagsins hefur margt gerst. Bókasafninu hefur vaxið fiskur
um hrygg. Umfang aukist og þjónusta eflst og batnað.
Með flutningi bókasafnsins á Eiðistorg opnuðust nýir möguleikar.
Safnið var komið í alfara leið þar sem það tengdist mannaferðum
til verslana og annarra hluta.
Flutningurinn hélst í hendur við breytt hlutverk safnsins. Lengst
af voru útlán bóka til lestrar helsta hlutverk þess og markmið.
Á síðustu árum hafa almenningsbókasöfn verið að þróast í alhliða
menningarmiðstöðvar þar sem efnt er til marvíslegra listviðburða.
Þetta hefur átt sér á Seltjarnarnesi líkt og víða annars staðar.
Leið ari
www.systrasamlagid.is
Einingar reistar
fyrir nýja
leikskólabyggingu
Unnið að flutningi eininganna.