Nesfréttir - 01.06.2023, Síða 14
14 Nesfrétt ir
G R Ó T T U S Í Ð A N www.grotta.is
Auður Anna með silfur í
stökki á Norðurlandamóti
170
GETRAUNANÚMER GRÓTTU
GETRAUNIR.IS
7. flokkur kvenna á
Nettómóti Keflavíkur
7 flokkur kvenna skellti
sér á Nettómót Keflavíkur í
byrjun júní.
Grótta fór með þrjú lið á
mótið og stóðu stelpurnar
sig gríðarlega vel. Dagskrá
mótsins var ekki af verri
endanum en stelpurnar léku
fjölmarga leiki ásamt því að
fara í hádegismat, bíóferð,
hoppukastala og enduðu
svo mótið á pizzuveislu,
verðlaunaafhendingu og
skemmtun með Siggu Ózk.
Þá var leiðinni haldið á
Seltjarnarnes þar sem þær
gistu saman í íþróttahúsi
Gróttu. Mikil upplifun fyrir
stelpurnar sem sköpuðu góðar
minningar saman um helgina.
Norðurlandamót unglinga
í áhaldafimleikum fór fram í
Helsinki helgina 18. – 20. maí.
Auður Anna Þorbjarnardóttir
frá Gróttu náði þeim glæsilega
árangri að verða í 2. sæti.
Hún varð í 13. sæti í fjölþraut,
stigahæst íslensku stúlknanna.
Auður hefur síðan verið valin
af landsliðsþjálfurum í næsta
verkefni sem er EYOF (European
Youth Olympic Festival), sem
fer fram í Maribor, Slóveníu,
dagana 23.29. júlí.
Yngra ár 6. flokks
karla skellti sér á
SET-mótið á Selfossi í
byrjun júní.
Grótta fór með
fjögur lið á mótið en
eldra ár flokksins fer á
Orkumótið í Eyjum í lok
mánaðarins. Strákarnir
stóðu sig gríðarlega vel
í sólinni á Selfossi og
vann eitt Gróttuliðið
sinn riðil og fór heim
með bikar í fararteskinu.
Vel gert strákar!
6. flokkur karla
gerði það gott
á Set mótinu
Fjórði flokkur kvenna ferðaðist til Salou og keppti á Barcelona Girls
Cup en þar voru 60 lið frá 10 löndum sem tóku þátt í mismunandi
aldursflokkum. Þjálfararnir Júlíus Ármann Júlíusson og Þorsteinn
Halldórsson fylgdu stelpunum út en mikil spenna hafði verið fyrir
ferðinni.
Stelpurnar æfðu miðvikudag, fimmtudag og föstudag við frábærar
aðstæður áður en mótið var spilað laugardag og sunnudag. Stelpurnar náðu
góðum árangri á mótinu og sköpuðu góðar minningar með liðsfélögunum
sínum. Alið Gróttu/KR sigraði mótið en þær mættu Val í úrslitum þar
sem Grótta/KR bar sigur úr býtum, 20. Matthildur Eygló var valin besti
markmaður mótsins og Rakel Grétarsdóttir var markahæst með 10 mörk.
Þá var Kara Guðmundsdóttir valin besti leikmaður mótsins af mótsnefnd
ásamt því að vera næstmarkahæst með 9 mörk. Blið Gróttu/KR endaði í
13. sæti eftir sigur á Val í vítaspyrnukeppni og Clið Gróttu/KR endaði þá í
12. sæti eftir hetjulega baráttu í leik gegn Jardar Football frá Noregi. Öll lið
stóðu sig frábærlega og voru félögum sínum til sóma í ferðinni.
Til hamingju með frábæran árangur stelpur.
Glæsilegur árangur hjá
fjórða flokki kvenna á
Barcelona Girls Cup!