Vesturbæjarblaðið - Jul 2023, Page 6

Vesturbæjarblaðið - Jul 2023, Page 6
6 Vesturbæjarblaðið JÚNÍ 2023 Allir nemendur Hagskóla eiga að geta stundað nám á heimaslóð á næsta skólaári. Húsnæði Hagaskóla verður tilbúið til notkunar með haustinu en meirihluta þess var lokað eftir að mygla fannst þar haustið 2021. Nemendur sem voru að ljúka 9. bekk luku önnina í húsnæði við Ármúla eftir að hafa verið á flakki misserin á undan. Á meðan stunduðu nemendur 8. bekkjar nám í Korpuskóla í Grafarvogi. Tíundubekkingarnir hafa aftur á móti getað notað þann hluta skólans í Vesturbæ sem var laus við myglu. Þeir halda á önnur mið í haust en blésu samt til hátíðar til þess að bjóða þau sem yngri eru velkomin heim. Hagaskóli. Allir heim í Hagaskóla í haust Hið nýja Parliament Hotel eða Hótel Alþingi er tekið til starfa eftir langt og strangt byggingarferli. Um er að ræða glæsilegt hótel á sögufrægum stað í Miðborginni. Ekkert er slegið af í lúxus í þessu yngsta hóteli í höfuðborginni enda er fyrst og fremst stílað upp á erlenda ferðamenn og einkum þá sem stundum eru kallaðir betur borgandi. Er þá átt við ferðamenn sem sækjast eftir góðum stað og viðurværi fremur en að horfa á eftir hverri krónu. Deilur urðu um byggingu hótelsins þar sem það stendur að hluta á Víkurkirkjugarði sem sjónarmið voru um að varðveita bæri. Framtíðarsýn í rekstri hótelsins er að hinum forna grafreit verði sýnd virðing sem einum merkasta minjastað borgarinnar og landsins og landsins í heild. Áhersla verður lögð á sögu svæðisins sem gestum verður gert kleyft að njóta. Hið nýja hótel er í Curio-línu Hilton, en sú lína tekur jafnan ríkulegt mið af sögu staðarins. Hótelið er við fótskör Alþingis og úti í garði er stytta af Jóni Sigurðssyni. Veitingastaðurinn í hótelinu heitir Hjá Jóni. Parliament Hotel er tekið til starfa Palament Hótel. Háskóla Íslands bárust tæplega tvö þúsund erlendar umsóknir um nám fyrir næsta skólaár. Árið 2016 voru erlendu umsóknirnar rétt rúmlega eitt þúsund. Alls bárust Háskólanum tæplega 9.500 umsóknir um grunn- og framhaldsnám fyrir næsta skólaár. Umsóknum fjölgar í ár um rúmlega sex prósent eftir lækkun í fyrra. Mikil fjölgun er í verkfræði og náttúruvísindum og einnig í heilbrigðisvísindum og í íslensku. Tvöföldun varð í fjölda erlendra umsókna frá árinu 2016. Íslenska sem annað mál er langvinsælasta grein skólans með 640 umsóknir og nemur fjölgunin þriðjungi. Engar fjöldatakmarkanir eru í greininni og ekki stendur til að breyta því. Fjölgunin skýrist hvort tveggja af meiri alþjóðavæðingu í háskólasamfélaginu og fjölgun innflytjenda. Umsóknum karla fjölgaði um 13 prósent en ráðist var í átak í vor til að fjölga umsóknum karlamegin í ráðuneyti háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar. Alþjóðavæðingin hefur áhrif á fjölda nemenda STÍLBÓKSTÍLBÓK Sjálfstætt starfandi apótek sem býður persónulega þjónustu og hagstæð verð á lyfjum og öðrum heilsutengdum vörum. L a u g a v e g i 5 3 b S: 414 4646 Elli- og örorkulífeyrisþegar njóta sérkjara hjá Íslands Apóteki Opnunartímar: Mán-Fös: 10:00-18:00 Laugardaga 10:00-16:00 Sunnudaga: Lokað Gómsæti í göngufæri Geirsgata 1 • Sími 511 1888 Jón Atli Benediktsson rektor háskóla Íslands.

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.