Vesturbæjarblaðið - júl. 2023, Blaðsíða 8
8 Vesturbæjarblaðið JÚNÍ 2023
Elín Sigrún Jónsdóttir, lögmaður | Tryggvagötu 11, 2. hæð
Sími 783 8600 | elin@buumvel.is | www.buumvel.is
Vantar þig þjónustu
við dánarbússkipti,
sölu og ráðstöfun eigna?
SÉRHÆFÐ
LÖGFRÆÐIÞJÓNUSTA
VEGNA BÚSETUSKIPTA
MEÐ ÁHERSLU Á 60+
Við Kirkjutorg 6 stendur eitt af fyrstu tvílyftu
íbúðarhúsunum sem reist var í Reykjavík. Húsið var
byggt 1860. Húsið var byggt af bindingi og hlaðið
í með hraun- og holtagrjóti. Klætt var utan á allar
hliðar með hellum og helluþaki á rimum.
Sögu hússins má rekja til 1860 að Jakob Sveinsson
húsasmiður fékk úthlutað landspildu vestan
Dómkirkjunnar. Á spildunni byggði hann tvílyft
íbúðarhús með kjallara og síðar smíðahús. Talið er að
íbúðarhúsið sé fyrsta tvílyfta íbúðarhúsið í Reykjavík.
Þetta var með hærri húsum sem byggð höfðu verið og
festist nafnið "Strýta" við það en það var einnig kallað
Jakobshús. Í gegnum tíðina hefur húsið verið skráð á
nokkrum stöðum án þess að hafa verið flutt til. Fyrst við
Austurvöll, þá Lækjargötu, næst Pósthússtræti 14 og að
endingu Kirkjutorg 6.
Lærði í Danmörku og Frakklandi
og kenndi mörgum
Hver var Jakob Sveinsson. Hann var ættaður af
Vatnsnesi í Vestur- Húnavatnssýslu. Foreldrar hans voru
Sveinn Guðmundsson bóndi á Ægisíðu og móðir hans
var Ingibjörg Þorsteinsdóttir, systir Jóns Þorsteinssonar
landlæknis. Jakob er talin hafa alist að mestu upp hjá
lækninum frænda sínum. Hann lærði trésmíði á Íslandi
en eftir það fór hann til Kaupmannahafnar þar sem
hann dvaldi í átta ár og var einnig um tíma í Frakklandi.
Hann lærði húsgagnasmíði erlendis og er talið að
hann hafi aðallega lagt stund á þá iðngrein á meðan
hann dvaldi þar. Eftir að hann kom aftur til Íslands
hóf hann kennslustörf og kenndi mörgum ungum
mönnum trésmíði. Hann var einn af stofnendum
Handiðnaðarmannafélags Reykjavíkur sem stofnað
var árið 1867 og var um tíma formaður þess. Á meðal
verkefna sem Jakob tók að sér var að sjá um viðgerð á
Dómkirkjunni árið 1878. Hann breytti turni kirkjunnar
í þá mynd sem hann er nú. Jakob var falið að sjá um
undirbúning að byggingu Alþingishússins áður en
erlendir smiðir komu til starfa við bygginguna. Honum
var einnig falið að smíða borðin í Alþingishúsið en stólar
voru keyptir erlendis frá.
Ekkjumaður með mannmargt heimili
Jakob Sveinsson giftist Málfríði Pétursdóttur
dóttur Péturs Magnússonar hreppstjóra í Seli í maí
1857. Hún lést 11. júlí 1857 aðeins tæpum tveimur
mánuðum eftir brúðkaup þeirra. Jakob giftist ekki
aftur og var ekki við kvenmann kenndur eftir lát konu
sinnar svo vitað sé. Hann eignaðist heldur ekki neina
afkomendur. Mannmargt var gjarnan á heimili hans.
Í manntali frá 1880 voru til húsa í húsinu sem sem
þá tilheyrði Pósthússtræti: Jakob Sveinsson trésmiður,
Sigríður Gunnarsdóttir ráðskona, ein vinnukona og
Marja Sveinsdóttir fósturdóttir Jakobs. Einnig bjuggu
í húsinu Jón Jónsson landritari og Eiríkur Briem,
prestaskólakennari. Flestir lærisveinar Jakobs bjuggu
á heimili hans á meðan á námi þeirra stóð og í
manntalinu frá 1880 dvöldu sex nemar á heimilinu.
Margir nafnkunnir menn
Jakob Sveinsson lést 9. ágúst 1896. Eftir lát hans var
húsið selt. Tryggvi Gunnarsson bankastjóri keypti það
ásamt viðbyggingum þar á meðal smíahúsi og seldi
síðan í nokkrum hlutum. Árni Nikulásson keypti
íbúðarhúsið og nokkra lóðarspildu vestan við það.
Árið 1903 byggði Árni þrílyfta timburbyggingu vestan
við húsið en áfasta við það og var innangengt á milli
húsanna. Árni Nikulásson var rakari og hafði rakarastofu
á fyrstu hæð nýja hússins. Margir nafnkunnir menn og
konur hafa búið í húsinu. Þar bjó Pétur Guðjohnsen
organisti með stóra fjölskyldu og hafði aðra hæðina
til afnota. Þar bjó Kristín Thoroddsen, ekkja Jóns
Thoroddsens og ól þar upp syni sína, Skúla, Þórð
og Sigurð. Af öðrum sem búið hafa við Kirkjutorg 6
má nefna Jón Ólafsson ritstjóra, Jón Jónsson ritara
og Einar Gunnarsson ritstjóra, sem var stofnandi
dagblaðsins Vísis. Fyrsta ritstjórnarskrifstofa blaðsins
var á Kirkjutorgi 6. Af öðrum sem bjuggu í húsinu má
nefna Herdísi Benediktsen frá Flateyri, Hannes Árnason
dósent og Gest Pálsson skáld.
Kirkjutorg 6 er í dag í eigu fyrirtækisins Þórsgarður
sem er fjárfestingarfyrirtæki er sérhæfir sig í kaupum
og rekstri á fasteignum. Eigendur þess eru Michael
Jenkins, bandarískur fjárfestir og Eygló R. Agnarsdóttir
og Valdís Fjölnisdóttir.
Elsta tvílyfta íbúðar
húsið í Reykjavík
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Vilja stækka
Þingholtsstræti 21
Lögð hefur verið fram umsókn Vesturstrætis ehf., um að stækka
Þingholtsstræti 21 en þar hefur Luna Apartments verið til húsa.
Lögð fram fyrirspurn til Reykjavíkurborgar um stækkun hússins
á lóð nr. 21 við Þingholtsstræti. Fyrirspurnin felst í að byggja eina
hæð og ris, samkvæmt tillögu Batterísins/Arkitekta ofan á hluta
hússins, sem er einnar hæðar bygging. Málinu hefur verið vísað til
umsagnar verkefnastjóra.
Séð inn Þingholtsstræti.
Kirkjutorg 6
Kirkjutorg 6.
Eyrartröð 16, 220 Hafnarrði
sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Eyrartröð 16
220 Hafnarrði
Opið kl. 11-16 virka daga
FALLEGIR LEGSTEINAR
Á góðu verði
Verið velkomin