Vesturbæjarblaðið - jul 2023, Qupperneq 13
13VesturbæjarblaðiðJÚNÍ 2023
Afgreiðslutími:
Mán: 10-16
Þri-fös: 10-17
Lau: 11-16
ÓÐINSGÖTU 1, REYKJAVÍK
systrasamlagid.is
@systrasamlagid
Sími: 511 6367
HUGSAÐU VEL
UM HÚÐINA
Einstakur fatnaður
Ripple jóga klæðnaður er
að okkar mati einn sá best
sniðni fyrir jóga, allskyns
hreyfingu og lífið.
Góðgerlapartý
20 billjónir góðgerla. Synerbio
daglegir meltingargerlar eru í
hópi bætiefna ársins 2023 frá
Virdian. Inniheldur allt litróf
prebiótíska oligosakkaríða
og inúlín sem fjölgar góð
gerlunum. Kíktu á úrvalið.
Blóðrásabætandi
verðlaunaolía
Sellulít olía er sérlega
áhrifarík lífræn nuddolía
við appelsínuhúð. Örvandi
blanda af blóðrásarbætandi
olíum og jurtum sem vinna
saman að sléttri, bólgulausri
og fallegri húð. Inniheldur
m.a. græna kaffibaunaolíu,
gotu kola, sætti birki ofl.
STUÐ
STUÐ
0
STUÐ
1
» Þarf stærri heimtaug?
» Hvaða lausn hentar best?
» Er kerfið búið álagasstýringu?
» Sjálfvirkt greiðslu- og innheimtukerfi?
Er hleðsla rafbíla
hausverkur
í húsfélaginu?
Við aðstoðum við að leysa málið með
hagsmuni húsfélagsins að leiðarljósi
Hlutlaus úttekt og ráðgjöf fyrir húsfélög um fyrirkomulag
rafbílahleðslu og framkvæmdaáætlun.
Útvegum og berum saman tilboð og aðstoðum við styrkjaumsóknir.
thjonusta@eignaumsjon.is | eignaumsjon.is
Á Vitatorgi starfar hljómsveit. Nefnist
hún Vitatorgsbandið. Bandið saman
stendur af fimm harmóniku leikurum,
gítarleikara, bassaleikara og trommara,
hefur í tuttugu ár skemmt gestum sam
félagshússins á Vitatorgi. Síðasta ball
Vitatorgsbandsins fyrir sumarfrí var
haldið í samfélagshúsinu á Vitatorgi í
gær. Að því tilefni mættu þau Þorvaldur
Daníelsson og Helga Þórðardóttir, full
trúar velferðar ráðs, á ballið og veittu
meðlimum bandsins þakklætis vott fyrir
sitt óeigingjarna starf. Guðrún Guðjóns
dóttir, talskona Vitatorgsbandsins, tók á
móti blómum og sagði nokkur orð fyrir
hönd bandsins. Í kjölfarið var dansað
og sungið.
Vitatorgsbandi á sér sögu. Sigríður
Norquist stofnaði bandið fyrir um tuttugu
árum. Hún Sigríður byrjaði ein að spila
á harmónikku á Vitatorgi og fór svo að
safna í kringum sig fólki. Í dag eru átta
hljóðfæra leikarar í bandinu, allt eldhresst
fólk komið yfir áttrætt. Í Vitatorgsbandinu
eru nú, auk Guðrúnar, þeir Gísli Gísla
son, Hjálmar Þór Jóhannesson, Valbjörn
Guðjónsson og Theodór Bogason sem allir
spila á harmónikku, Sigurður Guðmunds
son trommuleikari, Jón Unnar bassa
leikari og Eirný Ásgeirsdóttir gítarleikari.
Með þeim eru svo alla jafna söngvararnir
Grétar Þorsteinsson, Anna Jóhanns
dóttir og Emil Hjartarson en þau leiða
söng sem ballgestir taka þátt í. Hópurinn
kemur fram vikulega á Vitatorgi og æfir
stundum þess á milli, en þau eru með
æfingaaðstöðu í félagsmiðstöð eldri borg
ara í Hraun bænum. Sjálf spilar Guðrún á
harmónikku en hún byrjaði að læra á hana
55 ára og hefur ekki sleppt henni síðan.
Vitatorgsbandið spilar einkum gömul
dægurlög sem eldra fólkinu þykja góð.
Guðrún kveðst hræddust um að þessi lög
hverfi, sem væri mikil synd og bætir við að
ánægjulegt sé að sjá yngri kynslóðir taka
þátt í skemmtununum.
Hluti Vitatorgsbandsins þenur hljóðfærin.
Vitatorgsbandið
fær þakklætisvott