Vesturbæjarblaðið - nov 2023, Qupperneq 2

Vesturbæjarblaðið - nov 2023, Qupperneq 2
2 Vesturbæjarblaðið Útgefandi: Borgarblöð ehf. Eiðistorgi 13-15 • 172 Seltjarnarnes • Pósthólf 171 Rit stjóri: Þórður Ingimarsson • Sími: 893 5904 Netfang: thordingimars@gmail.com Auglýsingasími: 511 1188 • 552 1953 • 895 8298 Heimasíða: borgarblod.is Net fang: borgarblod@simnet.is Um brot: Borgarblöð ehf. Prentun: Landsprent ehf. Dreif ing: Póstdreifing ehf. 10. tbl. 26. árgangur Vesturbæjarblaðinu er dreift í hvert hús í póstnúmerum 107, 102 og 101. Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi varpar fram athyglisverðri hugmynd í viðtali hér í blaðinu. Hún hefur einnig flutt tillögu í borgarstjórn um málið og hún verið samþykkt. Hugmynd Ragnhildar Öldu er að heimili geti komið upp sólarsellum og unnið með þeim raforku til eigin nota fyrir heimili sín. Ljóst er að raforku skortir hér á landi. Einnig er ljóst að orkuskipti sem unnið er að kalla á enn meiri framleiðslu á raforku en áður var gert ráð fyrir. Forstjóri Landsvirkjunar telur að græn orka sé uppseld í landinu. Nú þegar hefur um 26% af öllu landsvæði á Íslandi verið friðað. Öll landnotkun orkugeirans nær þó aðeins til um 0.6% af landinu. Þótt framleiðsla á grænni orku yrði þrefölduð næði landnotkunin ekki 2%. Óraunhæf sjónarmið hafa ratað inn í stjórnkerfið og ráða þarna nokkru um. Rammaáætlun um orkunýtingu hefur verið að tefja en ekki að virka. Svo virðist að gleymst hafi að náttúruvernd og framleiðsla grænnar orku eru af hinum sama meiði. Sjónarmið sem þurfa að ná saman. Raforka er ein aðalforsenda þess að hægt sé að skapa störf í landinu. Án raforku verður lítið um atvinnusköpun sem er mikilvæg því landsmönnum fjölgar og skapa þarf störf fyrir komandi kynslóðir. Hugmynd Ragnhildar Öldu er einkar athyglisverð. Framleiðsla heimaorku með sólarsellum getur orðið hluti af grænni orkusköpun framtíðarinnar. Heimaorka NÓVEMBER 2023 ALHLIÐA MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR www.husavidgerdir.is/hafa-samband info@husavidgerdir.is - Sími 565-7070 Finndu okkur á Fegrun og lenging líftíma steyptra mannvirkja er okkar áhugamál. Við höfum náð góðum árangri í margs konar múr- og steypuviðgerðum, múrfiltun, steiningu og múrklæðningum. Hafðu samband Við skoðum og gerum tilboð! Fyrirhugað er að koma upp fjölorkustöð við Fiskislóð í Örfirisey. Festi ehf. hefur sótt um leyfi til Reykjavíkurborgar um uppbyggingu fjölorkustöðvar N1 á lóðinni Fiskislóð 15 til 21 á Granda. Á lóðinni eru verslanir Krónunnar, Jysk, Elko og Byko. Í næsta nágrenni, Ánanaustum, er Olís með bensínstöð. Þar er einnig hraðhleðslustöð Ísorku. Samkvæmt tillögu að breytingu á deiliskipulagi vegna Fiskislóðar 15 til 21 verður komið fyrir þremur nýjum byggingarreitum þannig að búnaður til eldsneytissölu og rafmagnshleðslu komist fyrir í jaðri lóðarinnar. Komið verður fyrir tveimur dælum fyrir fjóra bíla og búnaði til rafhleðslu fyrir allt að átta bíla. Með því móti veður hægt að orkuvæða bíla hvort sem þeir ganga fyrir rafmagni, bensíni eða dísilolíu. Fjölorkustöð við Fiskislóð Stórt verslunarsvæði er við Fiskislóð á Örfirisey. Vinnusmiðjum með yfir 200 unglingum í Reykjavík er lokið. Vinnusmiðjunum er ætlað að ýta undir lýðræðislega virkni nemenda í skóla- og frístunda- starfi og möguleika þeirra til að hafa áhrif á eigið nám. Margar fráb ærar, skemmtile gar o g fram sýnar hugmyndir komu fram í hópastarfinu. Í þessu sam bandi var líka fjallað var um hlutverk nemendafélaga og félagsmiðstöðvaráða. Ma r g a r h u g m y n d i r k o m u fram þegar unglingarnir lögðust í hugmyndavinnu um tilhögun skólastarfs. Mörg töldu mikilvægt að efla ætti iðn-, tækni og verkgreinar í grunnskólum, eins komu fram vilji til að efla lífsleikni og kynfræðslu og að læra meira um praktísk mál eins og um fjármál, skatta, íbúðakaup. Þá komu fram hugmyndir eins og að hefja fornám ökunáms í grunn skóla, að hægt væri að velja hvaða tungumál sem er í stað dönsku. Flest virtust á því að halda í hefðbundnu kjarnagreinarnar eins og íslensku, stærðfræði, ensku og samfélags- fræði. Þá komu ýmsar hugmyndir um þann tíma sem skólastarf ætti að standa yfir. Sumir voru á því að styttri hlé og þéttari skóladagur væri málið á meðan aðrir vildu jafnvel lengja skóladaginn en fá í staðinn lengri hlé og matartíma til að njóta samvista hvert við annað. Notalegt umhverfi í nýjum skóla Ýmsar hugmyndir komu fram varðandi hönnun nýs unglinga- skóla. Notalegt umhverfi var til umræðu og einnig nefnd aðstaða til að hita samlokur og núðlur og að gott væri að hafa lágvöruverslun í nágrenni við skólann. Fram kom að verðbólga gæti sligað Ísland næstu árin sem yrði áskorun og greinilegt var að núverandi efnahagsástand setti mark sitt á umræðuna. Tíu nemendur frá hverjum skóla Allt að tíu nemendur auk tveggja til fjögurra starfsmanna frá hverju grunnskóla í Reykjavík komu til vinnusmiðjunnar. Hver smiðja stóð yfir í tvo daga í fimm tíma í senn. Smiðjurnar byggja á aðferðar- fræði samfélagslegrar ný sköpunar þar sem allir þátttakendur fá rödd og tækifæri til að taka þátt í samtali og samsköpun hugmynda. Dagskrá beggja daganna skiptist í stutt innlegg, verkefni þar sem kafað er dýpra í viðfangsefnið, leiki og æfingar þar sem þátttaken- dur æfa sig í að hugsa á skapandi og lausnarmiðaðan hátt og setja sig í spor annarra. Vilja meiri tækni- og verkmenntun Frá Vinnusmiðjunum. Vinnusmiðjum ungmenna lokið

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.