Fréttir - Eyjafréttir - 02.03.2023, Blaðsíða 11
2. mars 2023 | | 11
Steinar Ívarsson er 21 árs og á
fyrsta ári í vélstjórnarnáminu.
„Ég var á stúdentsbraut en
ákvað að færa mig yfir. Hafði
áhuga á að læra vélfræði en
á lítið eftir í stúdentinn og
ætli maður slái þessu ekki
bara saman. Ég hef alltaf haft
áhuga á vélum og vélbúnaði.
Langaði að læra að sjóða
og smíða og fá grunninn í
málmsmíði. Ég ætla að klára
B stigið sem er annað stigið
til að byrja með og langar að
taka sveinspróf í vélvirkjun,“
segir Steinar.
Að námi loknu ætlar hann út
á vinnumarkaðinn og sjá svo
til hvort hann vill halda áfram
námi á sömu braut eða læra
eitthvað nýtt.
Matthías Harðarson, kennari
tæknigreina í FÍV er ekki við eina
fjölina felldur því auk þess að
hafa lokið námi við Vélskólann
er hann með mastersgráðu í org-
elleik. „Það er kannski ekki svo
sérstakt því orgel er bara ein stór
vél og stundum kölluð orgvélin,“
segir Matthías brosandi.
„Já, ég kláraði Vélskólann og hef
verið á sjó í afleysingum, kláraði
sveinsprófið í vélvirkjun og er að
kenna hérna. Masterinn í orgelleik
tók ég í Árósum í Danmörku og
er að leysa af sem organisti hér
og þar, held tónleika og kem að
ýmsu öðru sem tengist tónlist.
Hér kenni ég vélstjórn og erum
við með fyrstu tvö stig af fjórum í
vélstjórnarnáminu. Sjálfur tók ég
fyrstu tvö stigin við Framhalds-
skólann og er núna hinu megin
við borðið og byrjaði í haust,“
sagði Matthías.
Á vorönn eru tíu nemendur í
öðru stiginu og hátt í tuttugu
sem byrjuðu í haust. „Ég er mjög
ánægður með þennan fjölda og
þeir eru áhugasamir. Vélstjórnar-
námið er alþjóðlegt nám og þeir
sem útskrifast hjá okkur geta
starfað sem vélstjórar hvar sem er
í heiminum. Þannig að við getum
ekkert skorið okkur úr, verðum að
fylgja alþjóðlegum samþykktum,
stöðlum og reglugerðum.“
Námið er bæði bóklegt og
verklegt og segir Matthías skólann
vel tækjum búinn. „Það er helst
að okkur vanti meiri búnað til að
geta kennt fleiri stig. Við erum
með fjórar alvöru vélar sem
menn geta sett í gang og unnið
við. Einnig erum við með flottan
kælitæknibúnað þar sem hægt er
að setja helstu bilanir inn. Líka
nýjan vélhermi þar sem menn
geta fiktað og prófað án þess að
skemma nokkuð og fasað saman
án þess að slá út öllum bænum,“
sagði Matthías að endingu.
Sigurður Ragnar Steinarsson
er 21 árs og í vélstjórnar-
námi en fyrst lauk hann
stúdentsprófi við Framhalds-
skólann. „Áður en ég lauk
stúdentsprófinu var ég aðeins
byrjaður í vélstjórninni. Mér
finnst námið áhugavert og
skemmtilegt og hef alltaf
haft mikinn áhuga á vélum.
Þetta er líka verklegt sem mér
finnst mjög gaman. Auðvitað
má bæta búnaðinn og fá fleiri
rennibekki en kennararnir eru
toppmenn,“ sagði Sigurður.
Hann stefnir á að fara alla
leið í náminu og sér fyrir sér
að fara á sjóinn eða fá góða
stöðu í verksmiðju.
Matthías kennir tæknigreinar:
Vélstjóri með meistaragráðu í orgelleik
Matthías við Yanmar vélina japönsku sem er ein fjögurra véla sem skólinn hefur til umráða.
Steinar, Sigurður Ragnar og Þröstur í vel útbúnum vélasalnum.
Í vélstjórn eftir
stúdentinn
Skipti af stúdentsbraut
yfir í vélstjórann