Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 02.03.2023, Qupperneq 15

Fréttir - Eyjafréttir - 02.03.2023, Qupperneq 15
2. mars 2023 | | 15 að lagningu nýs sæstrengs árið 2025 sem verður til mikilla bóta til framtíðar litið. Þetta hefur áhrif á okkur öll Íris Róbertsdóttir er allt annað en ánægð með þá stöðu sem upp er komin. „Við höfum í nokkur ár verið að benda á þær sviðsmyndir sem gætu komið upp ef sæstreng- urinn bilaði, farið hefur verið yfir þessar sviðsmyndir með þing- mönnum, ráðherrum og fulltrúum Landsnets. Það gerist svo þann 30. janúar að ein þessar sviðs- mynda rætist, því miður, þegar bilun verður í VM 3. Það kemur í ljós að bilunin er um einn km út í sjó og ekki hægt að gera við með auðveldum hætti, ekki fyrr en veður verður skaplegt. Við sem hér sitjum í bæjarstjórn höfðum margsinnis bent á þá áhættu sem felst í því að hér er aðeins einn raunverulegur stengur og lítið fast varaafl.“ Hún segir það hafi þó verið jákvætt að fylgjast með viðbrögð- um, bæði hjá Landsneti og HS Veitum, eftir að bilunin kom upp og hafa þessir aðilar reynt hvað þeir geta til að bæta ástandið. „Tilraunir hafa verið gerðar með að nýta fasa úr VM2 og VM3 og gera virkan streng sem við köllum VM 23, sem gæti flutt 6 MW og í gegnum VM1 sem er rúmlega 60 ára fáum við 7- 7,5 MW. Varaafls- vélar eru til staðar frá Landsneti og HS Veitum og hægt að fá 10 MW úr þeim eins og staðan er núna. Okkur hefur því verið sagt að kerfið eigi að geta ráðið við loðnuvertíðina. En það er ekkert samfélag getur búið við þessa skertu orku í langan tíma og þetta hefur áhrif á okkur öll.“ Íris segir það lykilatriði að Landsnet tryggi varaafl og viðgerð á strengnum sem fyrst og í framhaldinu þarf að kanna lagningu á tveimur sæstrengjum (VM 4 og VM5) til að tryggja hér afhendingaröryggi. „Erfitt er að treysta á VM 3 í ljós þessara tveggja bilanna sem hafa komið fram í honum á sl. 6 árum. Við þurfum líka að hugsa til framtíð- ar.“ Í síðustu viku komu til Eyja orkumálaráðherra og forsvars- menn HS Veitna og Landsnets. „Allir þessir aðila sýna stöðu okkar mikinn skilning og eru sér meðvitaðir um alvarleikann enda er hann sannarlega kominn í ljós. Staðan í raforkumálum okkar verður ekki í lagi fyrr en hér verður komin á hringtenging, tveir heilir og virkir sæstrengir. Pressan er frá Vestmannaeyjabæ á það að þessum hlutum verið komið í lag enda á ábyrgð Landsnets og auð- vitað ríkisins að tryggja flutnings- leiðina fyrir raforku til Eyja. En það þarf að ganga í hlutina og við verðum að trúa því að það verði gert af þeim sem valdið hafa til þess,“ sagði Íris að lokum. Vestmannaeyjar skora hæst meðal 20 stærstu sveitarfélaga á Íslandi þegar spurt er um ánægju íbúa með sveitarfélagið sitt sem stað til að búa. Þetta var kynnt á íbúafundi sem fram fór í Eldheimum í vikunni sem leið. Samkvæmt árlegri þjón- ustukönnun Gallup ríkir almenn ánægja meðal bæjarbúa með þjónustu bæjarins. Það er afskaplega ánægjulegt frá því að segja að alls voru 94% þátttak- enda ánægðir með sveitarfélagið sem stað til að búa á og skora Vestmannaeyjar þar hæst meðal allra sveitarfélaganna, með einkunnina 4,5 af 5 möguleg- um. Milli ára fjölgar marktækt í hópi ánægðra íbúa í Eyjum. Alls eru 86% aðspurðra ánægðir með aðstöðu til íþróttaiðkunar í sveitarfélaginu. Minnst ánægja ríkir í Vestmannaeyjum með skipulagsmál almennt eða um 50% og þjónustu í tengslum við sorphirðu eða um 57%. Vestmannaeyjabær er auk þess í efsta sæti í 4 þáttum til viðbótar, af 13, þegar spurt er um ánægju íbúa: þjónustu við fatlaða, þjónustu við barnafjöl- skyldur, í menningarmálum og hvernig starfsfólk bæjarins leys- ir úr erindum íbúanna. Þetta er mjög jákvætt og gott veganesti í þeirri vinnu að bæta enn frekar þjónustu við bæjarbúa. „Af könnunni má ráða að við þurfum helst að bæta okkur í sorpmálum, þótt þar hafi náðst marktækur árangur á síðustu tveimur árum,“ sagði Íris Ró- bertsdóttir, bæjarstjóri, meðal annars þegar hún kynnti þessar niðurstöður á íbúafundinum. Íbúafundurinn í Eldheimum var vel sóttur. Tilboðið felst í að útvega 1.199 LED lampa fyrir götu- og stígalýsingu í eldri hverfi í Vestmannaeyjabæ sem og í ný hverfi sem verið er að reisa. Útboðsgögn verða afhent í tölvupósti í gegnum ráðgjafa verkkaupa, gudjon@liska.is og verður hægt að nálgast gögn til og með 10. mars 2023. Skilafrestur tilboðs er til kl. 10:00 miðvikudaginn 22. mars 2023. Opnun tilboða fer fram rafrænt að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Sjá einnig upplýsingar á vef Vestmannaeyjabæjar, vestmannaeyjar.is Vestmannaeyjabær óskar eftir tilboðum í : LED LAMPA FYRIR GÖTU- OG STÍGALÝSINGU VESTMANNAEYJABÆR Þjónustukönnun Gallup: Best að búa í Eyjum

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.