Fréttir - Eyjafréttir - 02.03.2023, Page 18
18 | | 2. mars 2023
Þú uppskerð eins og þú sáir
E Y J A M A Ð U R I N N H R A F N H I L D U R H A N N A Þ R A S T A R D Ó T T I R
Hrafnhildur Hanna Þrast-
ardóttir gekk til liðs við ÍBV
árið 2020 frá franska liðinu
Bourg-de-Péage. Hún endur-
nýjaði samning sinn við félag-
ið í fyrra og mun leika með ÍBV
til ársins 2024. Hrafnhildur
Hanna hefur mikla tenginu
til Eyja, foreldrar hennar eru
báðir fæddir hér.
Hrafnhildur Hanna hefur spil-
að frábærlega á tímabilinu.
Hún hefur skorað 133 mörk
í deild og bikar í 18 leikjum
og endurheimt landsliðssæti
sitt eftir að meiðsli settu strik
í reikninginn. ÍBV er sem
stendur í efsta sæti Olísdeild-
ar kvenna og mæta Selfossi,
uppeldisfélagi Hrafnhildar
Hönnu, í undanúrslitum í bikar
annan miðvikudag. Hrafnhild-
ur Hanna er því Eyjamaður
vikunnar.
Fullt nafn: Hrafnhildur Hanna
Þrastardóttir.
Fjölskylda: Foreldrar mínir eru
Þröstur Ingvarsson og Guðbjörg
H. Bjarnadóttir og eru bæði fædd
í Eyjum. Fyrir þá sem hafa gaman
af ættfræðinni þá er pabbi frá
Gjábakka og mamma frá Bjarma.
Systkini mín eru Örn Þrastarson,
íþróttastjóri handknattleiksdeildar
Selfoss, Hulda Dís Þrastardóttir,
meistaraflokksleikmaður Selfoss í
handbolta, og Haukur Þrastarson,
sem er atvinnumaður í handbolta í
Kielce í Póllandi.
Hefur þú búið annarsstaðar en í
Eyjum: Ég er fædd og uppalin
á Selfossi. Flutti þaðan til suður
Frakklands í eitt ár áður en ég
kom til Eyja fyrir tæpum þremur
árum.
Mottó: Þú uppskerð eins og þú
sáir.
Síðasta hámhorfið: Er að vinna
mig í gegnum The Good Doctor
núna.
Uppáhalds hlaðvarp? The Snorri
Björns Podcast Show.
Aðaláhugamál: Íþróttir, hreyfing
og allskonar útivist. Einnig finnst
mér gaman að ferðast.
Eitthvað sem þú gerir á hverjum
degi sem þú gætir ekki verið án:
Ég elska að komast í sund, reyni
að ná því daglega.
Hvað óttast þú mest: Ég óttast
ýmislegt og kónulær hafa alveg
komist inn á þann lista.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Er með mjög fjölbreyttan
tónlistarsmekk og það er mjög
mismunandi hvaða tónlist kemur
mér í gott skap. Fyrir leiki hlusta
ég þó oft á techno tónlist til að
koma mér í gírinn.
Hvaða ráð myndir þú gefa 18 ára
þér sem veganesti inn í lífið: Að
taka lífinu ekki of alvarlega. Það
er ekki til nein ein uppskrift af líf-
inu sem allir eiga að fylgja heldur
er mikilvægt að hlusta á eigin
sannfæringu og fylgja hjartanu í
því sem maður vill gera.
Hvað er velgengni fyrir þér: Að
leggja hart að sér við það sem
maður hefur ástríðu fyrir. Vera
stöðugt að vinna í því að vera
betri frá degi til dags, þrátt fyrir
mótlæti og áföll sem verða á vegi
manns.
Hvenær byrjaðir þú að æfa hand-
bolta? U.þ.b. 6 ára.
Hvernig er tímabilið búið að
vera? Það er búið að vera mjög
skemmtilegt. Við liðið höfum
unnið vel í okkar leik og verið að
bæta okkur jafnt og þétt í gegnum
tímabilið. En það er nóg eftir
ennþá og skemmtilegasti tíminn
er framundan.
Hvernig er staðan á liðinu, nú
þegar lokaspretturinn er að hefjast
í deild og bikarhelgin framundan?
Staðan á liðinu er nokkuð góð
eins og er. Það er mikil samstaða í
hópnum og mikil tilhlökkun fyrir
framhaldinu.
Hvernig lýst þér á að mæta
uppeldisfélaginu, Selfossi í
bikarúrslitum? Það er alltaf pínu
sérstök tilfinning að mæta upp-
eldisfélaginu. Mér finnst virkilega
gaman að sjá uppbygginguna í
handboltanum hjá Selfoss og þær
erum með mjög flott lið. Þegar
komið er í undanúrslit í bikar-
keppninni skiptir hins vegar ekki
máli hverir mætast, það getur allt
gerst í þessari keppni og við þurf-
um að mæta tilbúnar í verkefnið
sama hver mótherjinn er.
Eitthvað að lokum? Mig langar
fyrir hönd okkar leikmanna
að þakka Eyjamönnum fyrir
stuðninginnn sem við höfum
fengið hingað til. Það gefur okkur
gífurlega mikið að heyra í okkar
fólki í stúkunni og getur gert
gæfumuninn í jöfnum leikjum.
Núna erum við á leiðinni inn í
virkilega spennandi og skemmti-
legar vikur, final-4 í bikarkeppn-
inni, síðustu leikirnir í deildar-
keppninni og svo úrslitakeppnin
í framhaldi af því. Ég vil skora
á alla að halda áfram að mæta á
völlinn og vera með okkur í liði
í þessum spennandi leikjum sem
framundan eru.
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir.
Sunna og Hrafnhildur Hanna hafa leikið frábærlega í vetur.. Mynd: Sigfús Gunnar