Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 23.03.2023, Qupperneq 2

Fréttir - Eyjafréttir - 23.03.2023, Qupperneq 2
Útgefandi: Eyjasýn ehf. - kt. 480278-0549 Ægissgötu 2 - 900 Vestmannaeyjum. Ritstjórn og ábyrgð: Ómar Garðarsson og Sindri Ólafsson - omar@eyjafrettir.is - sindri@eyjafrettir.is. Umbrot: Leturstofa Vestmannaeyjum ehf. Ljósmyndir: Blaðamenn Eyjafrétta. Prentun: Stafræna Prentsmiðjan ehf. Sími: 481 1300 Netfang: frettir@eyjafrettir.is. Auglýsingar: auglysingar@eyjafrettir.is Veffang: www.eyjafrettir.is EYJAFRÉTTIR er áskriftarblað. Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið. Nú líður senn að lokum loðnuvertíðar og því ljóst að eitthvað mun draga úr raforkuþörf í Vestmannaeyjum með hækkandi sól. Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi hjá Landsnet sagði í samtali við Eyjafréttir að strengirnir sem virkir eru séu að flytja um 12,5 MW. „Síðustu vikur höfum við ekki þurft að keyra neytt varaafl í Eyjum. HS Veitur hafa hins vegar leigt af okkur varaaflsvélar til eigin nota.“ Hún segir þetta mikla breytingu frá fyrstu vikunum eftir bilunina þegar olíukostnaður Landsnets vegna keyrslu fyrir forgangsorku fyrstu 3 vikurnar frá bilun á VM3 var um 25 milljónir króna. Tvær leiðir í boði Aðspurð um viðgerð á strengnum sem bilaði sagði Steinunn. „Við höfum verið að skoða tvær aðferðir til viðgerða á strengnum. Annars vegar að gera við strenginn með samskonar aðferð og gert var þegar hann bilaði 2017 og nýta til þess varastreng sem Landsnet á í Eyjum og hins vegar að kaupa rúma 3 km af nýjum streng, fleyta honum upp á Landeyjasand, tengja hann þar við jarðstrengina á sama stað og VM3 tengist nú og setja eina tengingu í sjó. Aðferðirnar hafa ólíka kosti og galla og er verið að meta þá nú. Við höfum haft samband við verktaka sem sérhæfa sig í viðgerð á sæstrengjum og bíðum eftir tilboðum frá einhverjum þeirra.“ Hún segir þau hafa fundið streng sem til er á lager í Evrópu og hafa fengið tilboð frá framleiðanda strengsins. „Verði valið að fleyta nýjum streng þarf að kaupa nýjar tengimúffur til að tengja saman gamla og nýja strenginn og hefur Landsnet einnig fengið tilboð í slíkar múffur.“ Hún segir líklegt er að viðgerðartími verði í júní – júlí, en þá eru mun meiri líkur á veðri og öldulagi sem hentar viðgerð en takmörk eru á bæði veður- og ölduhæð meðan viðgerð fer fram. Skýrist á næstu dögum „Við leigðum um daginn erlendis frá tæki sem gerir okkur kleift að finna strenginn þar sem hann hefur grafist niður í sandinn og mæla þykkt sandlagsins ofan á strengnum. Tækið reyndist bilað og var því sent aftur út til viðgerða. Vonast er til að það komi aftur á næstu dögum og að þá verði hægt að gera þessar mælingar. Stefnt er að því á næstu dögum verði búið að afla nægra gagna til að hægt sé að ákveða viðgerðaraðferð og semja við verktaka til að sjá um viðgerðina.“ Brenndu olíu fyrir 25 milljónir fyrstu þrjár vikurnar Ekki þurft að keyra varaafl síðustu vikur Samkeppnisstofnun hefur veitt samþykki sitt fyrir samruna Ísfélags Vestmannaeyja og Ramma í Fjallabyggð. Kom samþykki hennar á föstudaginn. Aðspurður segir Einar Sigurðssonar, stjórnarmaður í Ísfélaginu, að nú taki við að vinna að samrunaáætlun sem fari svo í opinbera birtingu. Að ákveðnum tíma liðnum verði hún tekin fyrir á hluthafafundi hjá hvoru félagi sem hefur lokaorðið um sameininguna. Í kjölfarið verður haldinn hluthafafundur sameinaðs félags þar sem ný stjórn verður kjörin. „Rekstur félaganna hefur gengið vel það sem af er ári, aflabrögð góð og loðnuveiðin gekk vel. Ytra umhverfið er og verður þó erfitt næstu misseri og því skiptir máli að halda vel á spilunum, bæði í sjávarútvegi og annars staðar,“ segir Einar. Tilkynnt var á dögunum að Ísfélagið hefði fjárfest fyrir umtalsverðar fjárhæðir í Ice fish farm sem er í fiskeldi á Austfjörðum. Um er að ræða mjög stóra fjárfestingu en líka mikið tækifæri þó áhættan sé vissulega fyrir hendi. „Við höfum trú á laxeldi en það er mikilvægt þar eins og annars staðar að vanda vel til verka,“ segir Einar sem telur að greinin sé búin að slíta barnskónum og læra margt. „Það hafa stjórnvöld líka gert og það kemur skýrt fram í nýrri skýrslu matvælaráðherra, að mikil tækifæri eru fyrir Ísland þegar kemur að eldi, bæði í landi og sjó. Greinin getur orðið mikilvægur hluti í okkar landsframleiðslu og mikilvæg í verðmætasköpun á Íslandi. Þetta mun auk þess leiða af sér önnur tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki, bæði þegar kemur að hugviti og að framleiða t.d. fóður. Í okkar huga er þetta spennandi verkefni, það er komin aðeins lengri saga í sjóeldi hér á landi en landeldi. Við teljum einnig tækifæri þar líka þó svo að Ísfélagið þurfi að sníða sér stakk eftir vexti og muni einbeita sér að sjóeldi að minnsta kosti næstu misseri,” sagði Einar að endingu. Samruni Ísfélagsins og Ramma samþykktur: Fjárfesta í fiskeldi á Austfjörðum Heimaey að landa loðnu hjá Ísfélaginu í Vestmannaeyjum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.