Fréttir - Eyjafréttir - 23.03.2023, Side 6
6 | | 23. mars 2023
Hópur Eyjamanna hittist á
hverjum morgni hjá Reyni bakara
við Dalveg í Kópavogi. Þeir fá
sér morgunkaffi og skiptast á
sögum og fréttum. Mæting er um
níuleytið og sumir sitja alveg fram
undir klukkan ellefu.
Gunnar Sigurðsson
rafvirkjameistari og vélstjóri
frá Svanhól er fastagestur.
„Við byrjuðum á að hittast í
morgunkaffi tvisvar í viku á
kaffistofunni í Lakkhúsinu
hjá Himma í kringum síðustu
aldamót. Þeir byrjuðu þar
Gústi í Skálholti (Friðrik Ágúst
Hjörleifsson), Siggi á Háeyri
(Sigurður Guðmundsson), Haukur
Sigurðsson, Einar Jónsson frá
Berjanesi, Friðrik á Látrum
(Friðrik Jónsson), Maggi í Dal
(Magnús Oddsson), ég og fleiri,“
segir Gunnar. Himmi hét Hilmir
Þorvarðarson og stofnaði og rak
Lakkhúsið ásamt sonum sínum.
Hann lést árið 2019.
Það var oft þröngt setinn
bekkurinn í kaffistofunni og sífellt
bættist í hópinn. Síðar var farið að
byrja daginn með morgungöngu
í Fífunni. Félagarnir ganga
utandyra eða inni þegar veður
er vont. Eftir gönguna er farið
í morgunkaffi hjá Reyni bakara
sem Eyjamaðurinn Reynir Carl
Þorleifsson bakarameistari
stofnaði. Þar er nóg pláss og nú
hittast menn þar alla morgna
vikunnar. Venjulega koma 10-15
karlar en færri um helgar. Auk
ofantalinna koma nokkrir sem eru
búsettir í Eyjum og líta við þegar
þeir eru í borginni.
Margt ber á góma á þessum
morgunfundum. Pólitíkin er
mikið rædd en líka aflabrögð og
sjómennska. Ekki eru allir á sama
máli og því getur umræðan orðið
lífleg. Mikið er rætt um báta og
þegar Eyjamaðurinn Tryggvi
Sigurðsson kemur í heimsókn
er aðallega rætt um bátana, enda
er hann hafsjór af fróðleik á því
sviði. Menn fara margs fróðari af
þessum fundum.
Því var gaukað að blaðamanni að
sumir séu þó spenntari fyrir því að
tala um konur en báta!
Fótboltinn er líka vinsælt
umræðuefni og í hópnum eru
m.a. stuðningsmenn Manchester
United, Liverpool og Arsenal og
halda þeir þétt með sínum liðum.
Allir sameinast þó í eindregnum
stuðningi við ÍBV í öllum
greinum og eru í skýjunum yfir
bikarmeistaratitli kvennaliðs ÍBV
í handbolta.
Flestir sem mæta í kaffið hjá
Reyni bakara eru komnir á
eftirlaun. Þeir segja að þessir
morgunfundir bjargi alveg
deginum. Menn drífa sig upp á
morgnana í stað þess að liggja í
leti og það að eiga skemmtileg
samverustund með góðum
félögum getur ekki verið annað en
byrjun á góðum degi.
Í kaffi hjá Reyni bakara F.v. Ágúst Birgisson, Gunnar Sigurðsson, Steinn
Guðmundsson, Loftur Harðarson, Haukur Sigurðsson, Ólafur Örn
Kristjánsson, Sigurður Guðmundsson og Guðni Einarsson.
Ljósmynd/Ómar Garðarsson
Eyjakaffi alla daga hjá Reyni bakara
GUÐNI EINARSSON
gudnieinars@gmail.com
Foreldramorgnar í Landakirkju
hafa verið fastur liður í starfi
kirkjunnar í mörg ár. Í október
2021 hófu þeir aftur göngu sína
eftir pásu og hafa verið fastur
liður síðan. Prestar Landakirkju
eru afskaplega ánægðir með að
þetta starf hafi vaxið með þessum
hætti og vonast til að það haldi
áfram. Í gegnum árin hefur það
tíðkast að foreldri haldi utan um
starfið. Heba Dögg Jónsdóttir
hefur umsjón með starfinu í dag
og þegar hennar orlofi lýkur tekur
einhver við keflinu af henni.
Foreldramorgnar eru alla
fimmtudaga frá 10 til 12 í
Safnaðarheimili Landakirkju.
Morgnarnir eru opnir öllum
foreldrum ungra barna og
verðandi foreldrar eru að
sjálfsögðu velkomnir. Kvenfélagið
Líkn býður upp á kaffi og léttar
veitingar. Af og til er boðið upp
á fræðslu sem viðkemur börnum
og foreldrahlutverkinu og telji
einhver sig hafa eitthvað fram að
færa er honum velkomið að hafa
samband.
Blaðamaður Eyjafrétta kíkti á
foreldramorgun og spjallaði við
nokkrar mæður sem eru duglegar
að sækja morgnana. Þær voru
sammála um að þessi tími sé
ótrúlega gefandi að svo mörgu
leyti. Þeim þykir gott að geta
skipst á góðum ráðum og spjalla
við foreldra sem eru á sama stað
og þær sjálfar.
„Það er svo dýrmætt að koma
og sjá að allir eru að kljást við
allskonar atriði og finna að maður
er ekki einn í þessu. Einnig er
þetta frábær tími fyrir börnin að
eiga í félagslegum samskiptum
við aðra áður en þau fara í
leikskóla,“ segir Heba sem að
lokum vill hvetja þá sem hafa
áhuga á að koma og láta aðra
vita af starfseminni. „Það er svo
gaman að sjá ný andlit.“
Foreldramorgnar Landakirkju Allir velkomnir:
Alltaf svo gaman að sjá ný andlit
DÍANA ÓLAFSDÓTTIR
diana@eyjafrett ir. is
Alltaf góður andi á foreldramorgnum í Landakirkju.