Fréttir - Eyjafréttir - 23.03.2023, Qupperneq 14
14 | | 23. mars 2023
Lengi dreymt
um þetta
Elísa Elíasdóttir var að taka þátt í sínum fyrsta
bikarúrslitaleik í meistraflokki en á nokkra
leiki að baki með yngi flokkum félagsins. ,,
Það var ótrúlega gaman í yngri flokkunum en
ekki eins í samanburði við þennan úrslitarleik.
Upplifunin var ólýsanleg, alveg mögnuð
tilfinning að keppa svona leik með fullt af
stuðningmönnum í stúkunni og frábæra
liðsheild.
Ég held að þessi leikur muni verða
ógleymanlegur hjá mér, sagði Elísa og bætti
við að siglingin heim hafi verið einstök. ,, Það
var ótrúlega gaman, alveg einstök upplifun.
Þetta er náttúrulega einhvað sem mig hefur
dreymt um í langan tíma og alveg frábært að
fá loksins að upplifa það sjálf.”
Ótrúlega stolt
Ólöf María Stefánsdóttir var að taka þátt í
sínum fyrsta bikarúrslitaleik en hafði áður
tekið þátt með yngri flokkum og sagði hún
að ekki væri hægt að líkja neinu við þennan
leik.
,,Þetta lið og þessi stuðningsmenn gerðu
þetta ógleymanlegt! Upplifunin var geggjuð.
Stuðningurinn var ómetanlegur og vorum við
klárlega á heimavelli um helgina,” sagði Ólöf
María og bætti við að siglingin heim hefði
verið gríðarleg upplifun.
,,Það var ótrúlega gaman að geta siglt heim
með bikarinn. Maður var búin að heyra frá
öllum síðan ég kom til Eyja fyrst hvað það
væri skemmtilegt og eitthvað sem allir vilja
upplifa. Ég er ótrúlega stolt að fá að vera
partur af þessu liði og sigla bikarnum heim
með þeim og stuðningsmönnunum.”
Réði ekki við tárin
Ásta Björt Júlíusdóttir hafði fyrir þennan leik spilað
leiki í undanúrsltium bikarsins en aldrei náð í leikinn
stóra nema í yngri flokkum.
,,Upplifunin var gjörsamlega mögnuð, að fara
í höllina er alltaf sérstök tilfinning. Það er bara
eitthvað við það að spila þarna á dúknum og allt í
kringum þetta er svo skemmtilegt. Það er náttúrlega
magnað að vera þarna úti á gólfi og horfa á allt
fólkið okkar í stúkunni mætt að hvetja okkur. Ég
réð ekki við tárin að horfa á þau þegar leiktíminn
var liðinn og staðreyndin var sú að við vorum orðnir
bikarmeistarar.
Siglingin heim var bara algjör sturlun. Manni hefur
dreymt þessa siglingu ansi lengi og loksins fengum
við hana. Þetta var fyrsta af mörgum, við erum ekki
hættar. Það eru 2 titlar eftir og við ætlum okkur þá
líka. Það er ekkert eðlilega gaman að vera Eyjamaður
á svona stundum og maður verður extra extra soltur
af því á svona augnablikum,” sagði Ásta Björt.
Eitthvað sem aldrei
gleymist
Harpa Valey Gylfadóttir hefur áður tekið þátt í
undanúrslitum í Final 4 en aldrei lengra. ,,Það jafnast ekkert
á við að spila svona úrslitaleik og hvað þá að vinna hann.
Upplifunin var geggjuð, svo gaman að sjá hvað það mættu
margir að hvetja okkur. Það var frabær stemmning allan
tímann og það hjálpar þvílíkt mikið að hafa svona góðan
stuðning, maður fær einhvern extra kraft að horfa upp í stúku
og sjá allt fólkið sitt þar.
Það var ótrúlega gaman að spila í Höllinni, geggjuð
upplifun sem ég fékk að njóta með uppáhalds stelpunum
mínum,” sagði Harpa Valey og ekki var siglingin heim síðri.
,,Þetta var svo geggjað, erfitt að lýsa því í orðum, manni
er búinn að dreyma um þetta augnablik, sigla með Herjólfi
heim, sjá flugeldana og allt fólkið að taka á móti okkur á
bryggjunni. Það var bara geggjuð stemning allan tímann og
þetta er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma,” sagði Harpa
Valey.
Sendum ÍBV og stelpunum innilegar hamingjuóskir með
BIKARMEISTARATITILINN