Fréttir - Eyjafréttir - 23.03.2023, Qupperneq 16
16 | | 23. mars 2023
„Þetta er fimmti veturinn minn
með ÍBV og hefur mig allan
tímann dreymt um titil. Og
loksins kom hann. Var biðin alveg
þess virði og miklu meira en það,“
sagði Sunna Jónsdóttir fyrirliði
ÍBV sem stýrði sínu liði til sigurs
í úrslitaleik Bikarkeppninnar
gegn Val í Laugardalshöllinni á
laugardaginn, 31:29 í hörkuleik.
Þrátt fyrir allt sem á undan var
gengið, náðuð þið að stilla saman
strengi þegar kom að leiknum
stóra. „Auðvitað hafði þetta
áhrif og við fundum alveg fyrir
þessu. Við vorum að fara inn í
skemmtilegustu viku og helgi
ársins í handboltanum. Við erum
líka með ungar stelpur sem áttu
erfitt og vissu ekki í hvorn fótinn
þær áttu að stíga. Við reyndum að
einbeita okkur að handboltanum
og njóta þess að vera í þessari
stöðu. Algjör forréttindastaða en
við vorum búnar að vinna fyrir
þessu. Leggja hart að okkur og
áttum skilið að vera á þessum
stað. Við þéttum raðirnar og
efldumst sem hópur. Reyndum að
einbeita okkur að handboltanum.
Hitt mátti taka síðar,“ sagði
Sunna.
Höfðuð þið trú á að þið
mynduð klára þetta? „Já, það var
draumurinn og við höfðum allar
mikla trú á því, um leið vissum
við að við vorum að fara í mjög
erfiðan leik. ÍBV og Valur eru tvö
bestu lið landsins og að þetta yrði
stál í stál.“
Sunna er þakklát öflugum
stuðningsmönnum ÍBV í leiknum.
„Stuðningurinn var ólýsanlegur
og ómetanlegt fyrir okkur því
hann er okkar sterkasta og besta
vopn. Hreint magnað að spila með
ÍBV í þessari stemningu. Vá, get
ekki lýst því, gæsahúð, hjartsláttur
og allur pakkinn,“ sagði Sunna en
þá er ekki nema hálf sagan sögð.
Lögreglufylgd
„Rútuferðin í Landeyjahöfn var
skemmtileg. Tónlistin í botni og
allir glaðir og lögreglufylgd frá
Hvolsvelli. Algjörar drottningar.
Heimsiglingin alveg ólýsanleg.
Við sungum og trölluðum í fullum
Herjólfi, flugeldasýning þegar
við sigldum inn og móttökurnar
á bryggjunni. Alveg magnað að
upplifa þetta, stóðst allt væntingar
og gott betur þó þær væru nógar.“
Tekurðu undir þá fullyrðingu
að ÍBV sé besta lið á Íslandi í
kvennahandboltanum? „Já. Ég
held ég verði að taka undir það.
Við erum búnar að vinna átján
leiki í röð og vinna næstbesta lið
landsins þrisvar í röð. Þær voru
bikarmeistarar og höfðu reynsluna
en við vissum ekki alveg hvað
við vorum að fara út í. Það dugði
þeim þó ekki,“ sagði Sunna
stolt af sínum konum en enn eru
tveir titlar í boði, deildar- og
Íslandsmeistaratitillinn.
„Við áttum gott kvöld saman
og fögnuðum vel og innilega.
Okkur var kippt niður á jörðina
í hádeginu í dag. Tókum æfingu,
hittumst og spjölluðum. Við
eigum leik strax á miðvikudaginn
gegn KA/Þór og á laugardaginn
mætum við Selfossi hérna heima.
Í næstu viku getum við tryggt
okkur deildarmeistaratitilinn
þannig að við verðum að halda vel
á spöðunum. Halda einbeitningu
en við erum komnar á bragðið og
langar bara í meira,“ sagði Sunna
sem í lokin vildi enn og aftur
þakka stuðninginn.
„Kærar, kærar þakkir fyrir allan
stuðninginn sem er ómetanlegur.
Við gerðum þetta fyrir ykkur
og okkur öll. Gætum þetta ekki
án alls stuðningsins. Það var
áfall að missa markmanninn út
af með rautt spjald en að horfa
upp í stúku gaf svo mikinn kraft.
Við áttum klárlega Höllina,“
sagði Sunna Jónsdóttir fyrirliði
bikarmeistara ÍBV að endingu.
Að fá hingað afreksfólk
í fremstu röð til að leika
með ÍBV í meistaraflokkum
karla og kvenna í handbolta
og fótbolta er mikil
viðurkenning fyrir íþróttastarf
í Vestmannaeyjum og meiri
en flestir gera sér grein
fyrir. Það eitt að eiga lið í
efstu deildum í handbolta
og fótbolta karla og kvenna
er meira en flest félög á
landsbyggðinni geta státað
af. Að baki liggur mikil vinna
margra og þegar uppskeran
er Bikarmeistaratitill er
gleðin mikil. Það sýndi sig á
laugardaginn þegar stelpurnar
okkar gerðu sér lítið fyrir og
höfðu betur gegn Val þrátt
fyrir mótlæti fyrir leik og í
leiknum sjálfum.
Verðugir fulltrúar fólks sem
gengið hefur í raðir ÍBV eru
Sunna Jónsdóttir, fyrirliði
kvennaliðs ÍBV og Hrafnhildur
Hanna Þrastardóttir sem
gerði sér lítið fyrir og skoraði
tólf mörk í úrslitaleiknum á
laugardaginn. Báðar hafði þær
dreymt um að vinna titil með
ÍBV og verða hluti af samstöðu
Eyjamanna og innilegri gleði
þegar heim er komið. Eitthvað
sem aldrei gleymist.
Sunna fyrirliði og Hrafnhildur
markadrottning meira en sáttar
Sunna í skýjunum Mótlætið þétti hópinn:
Stuðningurinn ólýsanlegur og gaf kraft