Fréttir - Eyjafréttir - 23.03.2023, Side 21
23. mars 2023 | | 21
Það var bæði eftirvænting og spenna sem
fyllti hugann á leið á tónleika, Júníusar
Meyvants, eyjapeyjans Unnars Gísla
Sigurmundssonar í Hörpunni, föstudaginn
10. mars sl. Tækist drengnum að fylla
risastóran sal Hörpunnar og ná til gesta með
tónlist sinni? Hann stóð undir væntingum,
Harpan var nánast full og gífurleg stemming
frá fyrsta tóni til hins síðasta. Frábær
hljómsveit og Júníus brást ekki og útkoman
einstakir tónleikar sem lifa í minningunni á
meðan einhver týra er í kollinum.
Það var sterk upplifun að fá lögin sem hafa
heillað, Signals, Color Decay og Ain’t
gonna let it Down beint í æð og hafa glatt
milljónir á síðustu árum. Um var að ræða
útgáfutónleika plötunnar Guru sem kom út í
október. Eru þetta metnaðarfyllstu og stærstu
tónleikar sem Júníus hefur haldið hingað til.
Fór hann yfir allan ferilinn í bland við lög
af nýju plötunni. Júníus hefur gefið út þrjár
breiðskífur og tvær stuttskífur. Vinsælasta
lag hans á Spotify er Signals sem rúmlega
12 milljónir hafa hlustað á og mánaðarlega
hlusta rúmlega 320 þúsund manns á lögin
hans. Hans fyrsta lag, Color Decay sem kom
út árið 2014 náði heimsathygli og sýndi
hvers vænta mátti.
Júníus fékk góða gesti til liðs við sig, KK og
Bríeti sem tóku sitt hvort lagið með Júníusi
og var útkoman frábær. Gestir voru vel með
á nótunum og Júníus er ekki bara einstakur
tónlistarmaður. Hann er líka sögumaður
af Guðs náð sem kryddaði kvöldið.
Hljómsveitina skipuðu tónlistarmenn í
fremstu röð og sönghópurinn Kyrja átti
sinn þátt í að gera kvöldið ógleymanlegt.
Gestir voru vel með á nótunum frá fyrsta
tóni til hins síðasta. Fögnuðu hverju lagi og
heimtuðu aukalög.
Tónleikarnir stóðu hátt í þrjá tíma og
aldrei var slegið af og allir með bros á vör
að þeim loknum. Frostið beit þegar út var
komið en það skipti engu því Eyjahjartað
var að springa úr stolti og færði yl til allra
taugaenda. Já, okkar maður, Unnar Gísli stóð
fyrir sínu og vel það sem er viðurkenning
fyrir Vestmannaeyjar. Okkar maður að
standa sig á heimsvísu.
HLJÓMSVEIT: Júníus Meyvant – Söngur,
hljómborð, gítar, Kjartan Hákonarson –
Trompet, Kristófer Rodriques – Trommur,
Óskar Guðjónsson – Saxófónn, Rubin
Pollock – Gítar, Samúel Jón Samúelsson
– Básúna, Tómas Jónsson – Orgel og Örn
Eldjárn – Bassi.
Ómar Garðarsson
kynnt betur þegar nær dregur. Hver
listamaður kemur fram tvisvar á
tveimur mismunandi stöðum í 30-
40 mínútur í senn. Kvöldið skiptist
niður í þrjú tímahólf þannig að
hver tónleikagestur á því að ná að
sjá þrjú atriði frá upphafi til enda.“
Tónleikagestir frá armband og það
verður dyravörður á hverjum stað
og hver staðsetning kemur til með
að hafa hámarksfjölda gesta. „Ég
sé þetta þannig fyrir mér að það
væri sterkur leikur að fara kannski
út að borða á undan eða í einn
drykk einhvers staðar en vera með
2-3 bjóra í bakpoka. Síðan væri ég
búinn að ákveða hvaða listamenn
ég ætlaði að reyna að sjá og
hvenær. Ég myndi reyna að mæta
þangað tímanlega, ef það væri fullt
þá þyrfti ég bara að skoða hvað
annað væri í nágrenninu og rölta
mér þangað. Ég er mjög spenntur
fyrir þessu og held að Eyjamenn
eigi eftir að kunna að meta þetta.“
Munur á tónleikum og teiti
Hann segir þá líta á þetta sem
ákveðna tilraun og pælingin hafi
vera að rúlla boltanum af stað og
sjá hvað gerist, þetta hafi ekki
verið ofhugsað. „Auðvitað geti
komið upp einhver mál sem þarf
að leysa og aðstæðurnar vissulega
vera sérstakar. Eyjamenn eru
stemmningsfólk og vilja hafa
gaman. Fólk þarf samt að vera
meðvitað um það að tónleikar og
partý er ekki það sama. Það er
enginn að fara að hlamma sér í
sófann með snakkskál og sitja þar
næstu fjóra tímana. Tilgangurinn
er að kíkja í bæinn og rölta svo
á næsta stað. Kannski hittir þú
einhvern hressan á leiðinn og slæst
í för með honum eða ferð þangað
sem hann var að koma.“
Allir sögðu já
Það er í mörg horn að líta en
Gummi segir regluverkið sem
snýr að tækifærisleyfum eins og
þessum falla illa að heimahúsum.
„Það er margt sem við þurfum að
standa skil á eins og brunavarnir
og salerni og annað sem fylgir því
að selja miða á tónleika. Við ætlum
bara að gera allt rétt og standa skil
á okkar og stilla kompásinn rétt,
enda stefnum við á að þetta verði
árlegur viðburður.“ Aðspurður
um val á tónleikastöðum þá sagði
Gummi það ekki hafa verið mjög
flókið. „Við lögðumst yfir kort
af miðbænum og settum upp
ákveðinn óskalista yfir húsnæði
sem okkur fannst spennandi.
Við höfðum svo samband við
húsráðendur og það varð eins og
við manninn mælt að allir sem við
höfðum samband við sögðu já.“
Gummi vildi að endingu þakka
áðurnefndum samstarfsaðilum
fyrir þeirra aðkomu að þessu
uppátæki og þá sérstaklega
húsráðendum sem opna stofur
sínar og sagði það væri full ástæða
fyrir tónleikagesti að hlakka til
þess sem koma skal.
Einstakir tónleikar Júníusar Meyvants í Hörpu:
Stóð fyrir sínu
og vel það