Alþýðublaðið - 27.01.1920, Page 3
3
Primusa- og olíuofnaviðgerð-
in Laugaveg 27 er flutt á Lauga-
VpR 12 (í porfnu)
Þreytu og illri aðbúð, með verka-
manninum, sem er búinn að fá
kraeklóttar hendur af þrælavinnu
fyir lítið kaup. Það berst með
þeim fátæku, gegn þeim sem stöð-
ugt vilja halda alþýðunni nægi-
^ega fátækri til þess hún verði
háð þeim og þeir geti ráðið kaup-
gjaldinu.
Alþýðublaðið berst fyrir hug-
sJónum en ekki fyrir aurum. Það
er ekki gefið út til þess að græða
a því, eins og hin önnur blöð.
En úr því að Alþýðublaðið er
blaðið þitt, þá verður þú að styðja
það, með þvi að kaupa það. Og
þú skaðast ekki á því, þvf að það
er bezta blaðið. Heildsölunum og
auðvaldssinnum yfirleitt er mein-
iila við blaðið, en það sýnir ein-
*»itt hvað það er gott. Sumir
þeirra láta eins og þeim sé sama
u«i það, en það gera þeir aðeins
þess að dylja hvað þeim er í
raun og veru illa við það
Það er heimskur maður sem
Vegur að sjálfum sér. Þú vegur að
sjálfum þér, alþýðumaður, ef þú
kaupir blöð íjandmanna þinna.
Því að okrararnir eru fjandmenn
þioir, þó þeir brosi framan í fólkið
fyrir kosningar, og segist allir
Vera alþýðuvinir og ganga jafnvel
8vo Iangt að halda því fram að
þeir séu jafnaðarmenn.
Þeir eru jafnt fjandmenn þfnir
þútt þeir taki stundum á sig
sauðargæru og brosi blttt og séu
iitillátir þegar þeir vilja hafa eitt-
iúrert gagn af fólkinu. Okrararnir
°g blöð þeirra eru fjandmenn þín-
lr hvort sem þú ert daglaunamað-
Ur> sjómaður, iðnaðarmaður eða
°P'nber starfsmaður.
eru ekki störfin, sem skifta
^uönnum í flokka, heldur fjárhags-
ie8'r hagsmunir.
^ví verður það aldrei of oft
e»durtekið, að alþýðumenn, f
Vaða stöðu sem þeir eru, eiga
ei*ki að vega að sjálfum sér með
Pví* að kaupa blöð ójafnaðar-
^unna, mótstöðumanna sinna.
Kaupið Alþýðublaðið, alþýðu-
^enn, af því að það er gefið út
af Alþýðuflokknnm, flokknum ykk-
fr’ °g af því að það er bezta
bláðið. v
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
£jóð ejtir ijeine.
Á síðasta ári hefir hinn tínings-
trúi bókmentafrömuður vor, dr.
Alexander Jóhannesson, safnað og
séð úm útgáfu Heines Ijóða.
Heine er einhver mesti lyrikker
heimsins. Það þarf snilling til að
þýða hann skammlaust. Það þarf
hugrekki til að úrskurða sig sem
snillinginn. En íslenzk skáld þýða
Heine, þýða hann undir eins og
þeir geta stautað sig fram úr
þýzku. Hugrekki var eitt af ein-
kennum forfeðranna.
Skáldgyðju Heine heflr verið
velt upp úr íslenzkum leir, og dr.
Alexander Jóhannesson hefir leitt
hana fram fyrir heiðraðan almenn-
ing.
rSvona yrkir þá þessi Heine",
hugsar heiðraður almenningur, og
gleðst af því að eiga betri skáld.
En Heine yrkir ekki svona. Þessi
Ijóð eru ekki eftir hann, heldur
eru þau eftir íslenzk skáld, sem
nota sér nafn hans. Sum gera
það með hortittum og kvæða-
klúðri, eins og Sieingrímur Thor-
steinsson. Aðrir gera það hneykslis-
lítið, en snildarrýrt. Jónas Hall-
grímsson er undantekning. Hann
þýðir ekki að vísu, eD hann yrkir
Heine á ísleDzku og stendur þýzka
Heine ekki að baki.
Eg vildi ráðleggja íslenzkum
skáldum þetta: Pýðið ekki Heine,
nema þið getið skilað honum ó-
skemdum. Þýðið ekki Heine, nema
þið getið gert það svo illa,
að enginn taki mark á því. Þýðið
ekki Heine, nema þið getið gert
það eins og Jónas Hallgrímsson
eða Á. H. B.
e.
Ui daginn 09 veginn.
Uppboðsanglýsingin sem var
í blaðinn í gær er rétt eins og
hún stendur í dag. Uppboðið er
30. þ. m.
Oestamót. Ungmennafélagar
sem hér eru utan af landi ætla
á sunnudaginn kemur að halda
mót með s ér G.-T.-húnru.
Sjöstjarnan er nýkomin hing-
að norðan af Akureyri til þess að
stunda fiskiveiðar. Þau eru þá
þrjú norðanskipin, sem fiskveiðar
ætla að stunda hér syðra. Eitt
skip af Akureyri ætlar að stunda
veiðar í vetur frá ísafirði.
„Gnllfoss" kom í morgun.
Meðal farþega loftskeytastöðvar-
stjórinn Friðbjörn Aðalsteinsson.
Pýzkt skip sem flutti saltfarm
til Vestmannaeyja, kom hingað í
gær. Það kom við á skerjunum
undan Gróttu, og sat þar fast í
nokkra tíma, en hafði sig þaðan
af eigin ramleik, lítið eða ekkert
skemt.
Sjö Færeyingar komu með
Botníu til þess að sækja skip,
sem keypt hefir verið til Færeyja
frá Stykkishólmi. — Færeyingum
þessum þótti Reykjavík ljóta stór-
borgin, ekki hægt að fá þak yfir
höfuðið fyrir ferðamenn.
Listi Sjálfstjórnar við bæjar-
stjórnarkosningarnar á laugardag-
inn, er þannig:
Sigurður Jónsson, barnakennari.
Pétur Halldórsson, bóksali.
Páll H. Gíslason, kaupmaður.
Þórður Bjarnason, kaupmaður.
Þorsteinn Þorsteinsson, hagstofustj.
Sveinn Hjartarson, bakari.
Fyrirspurn.
Mundi Alþbl. ekki geta frætt
mig og fleiri, sem forvitnir eru,
á því, hvort satt sé, að Sláturfé-
lagið hafi nú fyrir nokkru orðið
að henda 1 sjóinn allmörgum
tunnum af saltketi frá í fyrra,
sem orðið var óætt? Og er slíkt
ekki glæpsamlegt, að geyma ketið
svona lengi, heldur en að selja
það svöngum bæjarbúum fyrir
sanngjarnt verð?
Spurull.
Alþbl. vísar spurningu þessari
til Sláturfélagsins.